Fara á forsíðu
Viðvaranir
  1. Forsíða
  2. Frá vaktinni
  3. Áfram eru litlar hreyfingar á Svínafellsheiði

25.11.2026

Áfram eru litlar hreyfingar á Svínafellsheiði

  • Litlar hreyfingar mælast áfram á Svínafellsheiði.
  • Hætta í byggð er talin lítil að svo stöddu.
  • Veðurstofan mælir ekki með ferðum á Svínafellsjökul á næstunni.

Áfram eru að mælast litlar hreyfingar á Svínafellsheiði. Næstu daga fer suðaustanstormur yfir landið. Búast má við að veðrið geti haft áhrif á afhendingu mæligagna fram að helgi.

Myndin sýnir GPS stöð sem er staðsett á Svínafellsheiði. Tekin í október 2026.

GPS stöð á Svínafellsheiði.

Hætta í byggð er talin lítil að svo stöddu. Ef berghlaup fellur úr sprungusvæðinu við núverandi aðstæður telja sérfræðingar líklegast að það stöðvist á jöklinum áður en það nær lóninu við jökulsporðinn.

Á jöklinum sjálfum yrði mikil hætta ef skriður féllu úr hlíðinni. Veðurstofan mælir því ekki með ferðum á Svínafellsjökul á næstunni.