29.11.2026
Breytileg átt næstu daga og él á víð og dreif
Lægðin sem gekk yfir landið í gærkvöldi og í nótt hefur nú fjarlægst. Vindur er því yfirleitt hægur og allvíða él, en úrkomulítið á Norðurlandi. Hiti kringum frostmark.
Áfram hægur vindur á morgun, en suðvestan kaldi eða strekkingur um landið norðaustanvert. Snjókoma eða slydda með köflum norðanlands, og él á Suðausturlandi fram eftir degi, en þurrt að mestu suðvestantil. Heldur kólnandi.
Á þriðjudag er svo útlit fyrir norðvestanátt með éljum víða um land, en lengst af þurru veðri á Suðurlandi.