27.11.2026
Enn ein djúp lægð á leiðinni
Hvessir á morgun, austan- og suðaustan hvassviðri eða stormur, jafnvel rok suðaustanlands seinnipartinn. Vindhviður við fjöll gætu staðbundið farið yfir 35 m/s þar sem viðvaranir eru í gildi.
Þá hvessir einnig talsvert á Norðurlandi annað kvöld og búast má við dimmu hríðarveðri á fjallvegum.