27.11.2026
Fylgst áfram með hreyfingum á Svínafellsheiði
Staðan á Svínafellsheiði hefur verið óbreytt undanfarna daga. Litlar hreyfingar, á millimetraskala, mælast bæði í togmælum og GPS-kerfi.
Þrír togmælar mæla breytingar á fjarlægð milli fastpunkta sem staðsettir eru sitt hvorum megin við meginsprunguna. GPS-kerfið veitir rauntímaupplýsingar um hreyfingar á tveimur stöðum, sitt hvorum megin við meginsprunguna.
Á efri gröfunum hér fyrir neðan má sjá hreyfingar sem mælast í þremur togmælum frá 1. september. Á fyrri hluta september sjást engar hreyfingar sem tengjast greinilega gliðnun sprungunnar. Þær færslur sem mælast á því tímabili tengjast hins vegar hitabreytingum. Frá 23. september má sjá að fjarlægðin milli fastpunktanna eykst, sem bendir til þess að sprungan sé að gliðna. Áhrif hitabreytinga eru þó enn sýnileg í mælingunum.
Á næsta grafi er sýnd úrkoma sem mældist á úrkomustöðinni í Skaftafelli, sem er næsta veðurstöð við Svínafellsheiði. Súlan sýnir úrkomuákefð en línan uppsafnaða úrkomu. Frá 1. september hefur samtals mælst 644 mm úrkoma og mesta úrkomuákefðin mældist 3. nóvember, eða 8,8 mm á klukkustund.
Neðsta grafið sýnir lofthita á veðurstöðinni í Skaftafelli.

Togmælingar á Svínafellsheiði og veðurmælingar í Skaftafelli frá 1. september 2026
Úrkoma getur verið mun meiri á Svínafellsheiði en í Skaftafelli, þrátt fyrir að aðeins séu um 7–8 km á milli staðanna. Svínafellsheiði liggur mun hærra í landi, rétt ofan við jökulinn, og svæðið er umlukt háum fjöllum.
Talið er líklegt að vatnsþrýstingur í berginu hafi áhrif á hreyfingar á Svínafellsheiði. Töluverð úrkoma hefur verið á svæðinu undanfarna daga og í næstu viku því kæmi ekki á óvart ef hröðun mælist á næstu dögum eða í næstu viku.
Hætta í byggð er talin lítil að svo stöddu. Ef berghlaup fellur úr sprungusvæðinu við núverandi aðstæður telja sérfræðingar líklegast að það stöðvist á jöklinum og nái ekki alla leið að lóninu við jökulsporðinn.
Á jöklinum sjálfum yrði mikil hætta ef skriður féllu úr hlíðinni. Veðurstofan mælir því ekki með ferðum á Svínafellsjökul á næstunni.
Fyrir þau sem vilja kynna sér svæðið betur má benda á nokkrar fræðigreinar sem hafa verið birtar á undanförnum árum:
- „The destabilization of a large mountain slope controlled by thinning of Svínafellsjökull glacier, SE Iceland“ – Lesa greinina.