Fara á forsíðu
Viðvaranir
  1. Forsíða
  2. Frá vaktinni
  3. Gengur í suðaustanhvassviðri eða -storm sunnan- og vestanlands í kvöld

21.11.2026

Gengur í suðaustanhvassviðri eða -storm sunnan- og vestanlands í kvöld

Gerir suðaustanhvassviðri eða -storm á sunnan- og vestanverðu landinu í kvöld. Vindhviður gætu farið yfir 35 m/s við fjöll, einkum nærri Eyjafjöllum, á Reykjanesi, við Esju og Hafnarfjall. Varasamir vindar fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind.


Sjá nánar veðurviðvaranir.