Fara á forsíðu
Viðvaranir
  1. Forsíða
  2. Frá vaktinni
  3. Hvassviðri eða stormur austantil síðdegis á morgun

27.11.2026

Athugið

Hvassviðri eða stormur austantil síðdegis á morgun

Austan- og suðaustan hvassviðri eða stormur um austanvert landið eftir hádegi á morgun.

Vindhviður við fjöll gætu staðbundið farið yfir 35 m/s þar sem viðvaranir eru í gildi.

Þá hvessir einnig talsvert á Norðurlandi annað kvöld og búast má við dimmu hríðarveðri á fjallvegum. Sjá gular viðvaranir.