Fara á forsíðu
Viðvaranir
  1. Forsíða
  2. Frá vaktinni
  3. Hvassviðri í dag, éljagangur á morgun

26.11.2026

Hvassviðri í dag, éljagangur á morgun

Byrjað er að hvessa víða um landið þegar þetta er skrifað og viðvaranir í gildi í mörgum landshlutum. Lægðin fikrar sig nú nær landi og stefnir lægðarmiðjan norður með vesturströndinni og þaðan vestur að Grænlandi um hádegi á morgun.

Þessi lægð veldur austan og suðaustan hvassviðri eða stormi með rigningu víða á landinu fram á nótt. Hiti 3 til 8 stig.

Í nótt þegar lægðarmiðjan er komin vestur af landinu snýst í sunnan átt og rigningu með köflum. Dregur svo úr vindi í fyrramálið þegar hún fjarlægist og dregur úr rigningu. Suðlæg átt 8-15 m/s eftir hádegi á morgun og kólnar með skúrum eða slydduéljum, en úrkomulítið norðantil.


Smálægð nálgast svo landið á laugardag og veldur allhvassri suðaustanátt og rigningu eða slyddu, en hægari vindur vestantil.

Útlit fyrir suðlæga átt á sunnudag með skúrum eða slydduéljum, en úrkomuminna norðanlands. Fremur svalt í veðri um helgina.


Myndin er innrauð gervitunglamynd í svarthvítu. Svæðið sýnir Ísland fyrir miðju og hafið í kring. Grænland sést í efra vinstra horninu og norðurhluti Bretlands í neðra hægra horni. Myndin sýnir hvernig skýjin í lægðinni sem er suður af Reykjanesi og teygir sig yfir Ísland. Radar upplýsingar um úrkomu eru svo yfir íslandi í bláum, grænum, gulum og rauðum lit. Radarinn sýnir úrhellisrigningu á austanverðu landinu og rigninu víða annarsstaðar.