27.11.2026
Kröpp lægð á leiðinni og veðurviðvaranir taka gildi á morgun
Víðáttumikil lægð milli Íslands og Grænlands fjarlægist. Gengur á með suðaustankalda eða -strekkingi á landinu og skúrum, en síðar slyddu- eða snjóéljum. Bjart með köflum norðaustantil og kólnar í veðri, víða vægt frost í innsveitum í nótt.
Langt suður í hafi er ört vaxandi lægðarbylgja á norðurleið sem verður síðar að krappri lægð. Fremur hægur vindur í fyrramálið og skúrir eða slydduél, en síðan nálgast skil lægðarinnar sem veldur hvassviðri eða stormi á austanverðu landinu. Sú lægð færir okkur fremur hlýtt loft með rigningu við suður- og austurströndina, en slyddu eða snjókomu inn til landsins og einnig um tíma vestanlands síðdegis. Lægðin hreyfist norðvestur yfir landið annað kvöld og veldur þá dimmu hríðarveðri á fjallvegum nyrðra. Útgefnar hafa verið veðurviðvaranir vegna hvassviðris og hríðar fyrir morgundaginn.
Seint á sunnudagsnótt og um hádegið er lægðin komin út á Grænlandssund og dregur þá talsvert úr vindi og hríð. Fremur hæg suðlæg átt og dálitlar skúrir eða slydduél seinnipartinn, einkum með suðurströndinni.