Fara á forsíðu
Viðvaranir

Kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi

26.05.2026

Kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi

  • Landris við Svartsengi mælist áfram stöðugt
  • Um 26,6 milljónir rúmmetra af kviku hafa safnast saman frá 16. júlí 2025
  • Jarðskjálftavirkni er áfram lítil
  • Hættumat er óbreytt og gildir til 30. júní

Aflögun

Landris og kvikusöfnun heldur áfram við Svartsengi og mælist þróunin áfram stöðug. Nýjustu líkanreikningar benda til þess að um 26,6 milljónir rúmmetra af kviku hafi safnast saman undir Svartsengi frá því síðasta gos hófst, 16. júlí 2025. Meðalhraði kvikusöfnunar síðustu fjórar vikur hefur haldist stöðugur. 

Þrjú línurit sýna færslur GPS-stöðvarinnar HS02 til norðurs, austurs og upp á við til 25. maí 2026. Eftir skyndilega færslu og landsig í júlí tekur við viðvarandi landris og færsla til norðurs. Landrisið bendir til áframhaldandi kvikusöfnunar undir Svartsengi.

Tímaraðir GPS-stöðvarinnar HS02 sýna láréttar og lóðréttar færslur frá sumri 2024 til maí 2026. Lóðrétti þátturinn bendir til áframhaldandi kvikusöfnunar undir Svartsengi.

Jarðskjálftavirkni

Jarðskjálftavirkni á Sundhnúksgígaröðinni og í grennd við Grindavík er áfram lítil. Engin marktæk breyting hefur orðið á skjálftavirkninni frá síðustu uppfærslu.

Hættumat

Hættumat Veðurstofunnar er óbreytt og gildir til 30. júní nema breytingar verði á virkninni. Sólarhringsvakt Veðurstofunnar fylgist áfram grannt með framvindunni.

Hættumatskort vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga, með gildistíma frá 31. mars til 30. júní 2026. Mest hætta er við Sundhnúksgígaröðina. Hætta í Grindavík er metin töluverð, í Svartsengi og við Reykjanesvirkjun nokkur, í Vogum lítil og í Keflavík, Njarðvík og á Keflavíkurflugvelli mjög lítil. Viðvörunarstig eldstöðvarinnar Reykjanes/Svartsengi er 2: töluvert aukin virkni.