Fara á forsíðu
Viðvaranir
  1. Forsíða
  2. Frá vaktinni
  3. Lægðagangur við Ísland

21.11.2026

Lægðagangur við Ísland

Hæðarhryggur liggur milli Íslands og Noregs, en lágþrýstisvæði sunnan og vestan við landið. Því fylgir lægðagangur með vinda- og vætusömu veðri næstu daga.

Gengur í suðaustanhvassviðri eða -storm með rigningu sunnan- og vestanlands í kvöld, en sums staðar slyddu í fyrstu . Gular veðurviðvaranir vegna vinds fyrir sunnan- og vestanvert landið taka gildi í kvöld og gilda sumar fram yfir hádegi á morgun. Hægari vindur á Norður- og Austurlandi með þurru veðri og vægu frosti. Smám saman hlýnandi veður.


Í nótt og framan af morgundegi blæs áfram hvöss suðaustanátt eða stormur með rigningu, en helst að mestu þurrt norðan- og austanlands. Hlýtt í veðri með hita að 10 stigum þar sem hlýjast er. Dregur smám saman úr vindi og vætu seinnipartinn, en lægir svo um munar vestast.