Fara á forsíðu
Viðvaranir

Landris og kvikusöfnun heldur áfram

21.07.2026

Landris og kvikusöfnun heldur áfram

  • Landris við Svartsengi mælist áfram hægt en stöðugt  
  • Jarðskjálftavirkni er áfram lítil  
  • Hættumat óbreytt 

Landris og kvikusöfnun heldur áfram við Svartsengi og mælist þróunin áfram hæg en stöðug. Nýjustu líkanreikningar gefa til kynna að kvikusöfnun undir Svartsengi frá upphafi síðasta goss, 16. júlí 2025, sé metin á 28,3 milljónir rúmmetra, með óvissubili frá 27,5 til 29,1 milljón rúmmetra. Á meðan kvika heldur áfram að safnast fyrir og þrýstingur í kerfinu eykst er líklegasta sviðsmyndin sú að kvikuhlaup fari frá Svartsengi yfir í Sundhnúksgígaröðina, sem gæti leitt til eldgoss. Gera þarf ráð fyrir stuttum fyrirvara, líkt og áður, en hann hefur verið á bilinu 20 mínútur upp í rúmar fjórar klukkustundir.

Súlurit sem sýnir áætlað rúmmál kviku sem safnast hefur undir Svartsengi milli kvikuhlaupa. Rauð súla sýnir núverandi kvikusöfnun, um 28 milljónir rúmmetra, sem er meiri en fyrir öll fyrri kvikuhlaup á ritinu. Óvissubil eru merkt efst á súlunum.

Áætlað rúmmál kviku sem safnast hefur undir Svartsengi milli kvikuhlaupa. Rauða súlan sýnir kvikusöfnun frá síðasta kvikuhlaupi, en brúnu súlurnar sýna fyrri tímabil. Matið byggist á líkanreikningum út frá aflögunarmælingum. Svörtu strikin sýna 95% óvissubil.

Líkanreikningar benda til þess að rúmmálsbreyting undir Svartsengi séu á bilinu 27,5 - 29,1 milljónum rúmmetra. Matið byggir á GNSS-mælingum og InSAR-gögnum og sýna svörtu línurnar 95% óvissubil. 

Skjálftavirkni 

Jarðskjálftavirkni á Sundhnúksgígaröðinni og í grennd við Grindavík er áfram lítil. 

Hættumat 

Hættumat er óbreytt og gildir til 30. september. 

Hættumatskort af Reykjanesskaga frá 30. júní 2026. Hætta er mest við Sundhnúksgígaröðina. Töluverð hætta er metin í Grindavík, nokkur í Svartsengi og við Reykjanesvirkjun, lítil í Vogum og mjög lítil í Keflavík, Njarðvík og á Keflavíkurflugvelli.

Hættumatskort Veðurstofu Íslands, gefið út 30. júní 2026. Kortið sýnir samanlagt mat á hættu vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga og gildir til 30. september 2026, nema breytingar verði á virkni.