Fara á forsíðu
Viðvaranir

Landris og kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi

09.06.2026

Landris og kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi

  • Landris við Svartsengi heldur áfram með stöðugum hraða
  • Líkanreikningar benda til áframhaldandi kvikusöfnunar frá því um miðjan júlí 2025
  • Jarðskjálftavirkni er áfram lítil
  • Hættumat er óbreytt og gildir til 30. júní

Aflögun


Landris og kvikusöfnun halda áfram við Svartsengi og þróunin mælist áfram stöðug. Nýjustu líkanreikningar benda til þess að rúmmálsbreyting undir Svartsengi frá því um miðjan júlí 2025 samsvari um 27,5 milljónum rúmmetra. 

Súlurit sem ber saman reiknað rúmmál kviku sem safnast hefur undir Svartsengi milli eldgosa frá nóvember 2023. Rauða súlan sýnir um 27,5 milljónir rúmmetra frá 17. júlí 2025 til 7. júní 2026, meira en á fyrri tímabilum á myndinni. Svartar línur við súlurnar sýna 95% óvissubil.

Líkanreikningar benda til þess að rúmmálsbreyting undir Svartsengi frá því um miðjan júlí 2025 samsvari nú um 27,5 milljónum rúmmetra. Matið byggir á GNSS-mælingum og InSAR-gögnum og sýna svörtu línurnar 95% óvissubil.

Jarðskjálftavirkni

Jarðskjálftavirkni á Sundhnúksgígaröðinni og í grennd við Grindavík er áfram lítil. Engin marktæk breyting hefur orðið á skjálftavirkninni frá síðustu uppfærslu.

Hættumat

Hættumat Veðurstofunnar er óbreytt og gildir til 30. júní nema breytingar verði á virkninni. Sólarhringsvakt Veðurstofunnar fylgist áfram grannt með framvindunni.

Hættumatskort vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga, með gildistíma frá 31. mars til 30. júní 2026. Mest hætta er við Sundhnúksgígaröðina. Hætta í Grindavík er metin töluverð, í Svartsengi og við Reykjanesvirkjun nokkur, í Vogum lítil og í Keflavík, Njarðvík og á Keflavíkurflugvelli mjög lítil. Viðvörunarstig eldstöðvarinnar Reykjanes/Svartsengi er 2: töluvert aukin virkni.