Fara á forsíðu
Viðvaranir

Landris við Svartsengi heldur áfram með stöðugum hraða

30.06.2026

Landris við Svartsengi heldur áfram með stöðugum hraða

  • Landris við Svartsengi heldur áfram með stöðugum hraða
  • Áframhaldandi hæg kvikusöfnun sem endar með nýju kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi áfram líklegasta sviðsmyndin
  • Hættumat er óbreytt og gildistími hefur verið framlengdur til 30. september

Aflögun

Kvikusöfnun og landris heldur áfram við Svartsengi. Meðalhraði kvikusöfnunar undanfarnar vikur hefur haldist stöðugur.

Áframhaldandi hæg kvikusöfnun sem endar með nýju kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi áfram líklegasta sviðsmyndin.

Jarðskjálftavirkni

Jarðskjálftavirkni á Sundhnúksgígaröðinni og nærri Grindavík er einnig áfram frekar lítil og með svipuðu móti og áður. Engin marktæk breyting hefur orðið á jarðskjálftavirkni síðustu vikurnar.

Hættumat

Hættumat er óbreytt og gildistími hefur verið framlengdur til 30. september.

Hættumatskort af Reykjanesskaga frá 30. júní 2026. Hætta er mest við Sundhnúksgígaröðina. Töluverð hætta er metin í Grindavík, nokkur í Svartsengi og við Reykjanesvirkjun, lítil í Vogum og mjög lítil í Keflavík, Njarðvík og á Keflavíkurflugvelli.

Hættumatskort Veðurstofu Íslands, gefið út 30. júní 2026. Kortið sýnir samanlagt mat á hættu vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga og gildir til 30. september 2026, nema breytingar verði á virkni.