Fara á forsíðu
Viðvaranir
  1. Forsíða
  2. Frá vaktinni
  3. Mikil úrkoma á Austfjörðum – skriðuviðvaranir enn í gildi til klukkan 14 í dag

27.11.2026

Athugið

Mikil úrkoma á Austfjörðum – skriðuviðvaranir enn í gildi til klukkan 14 í dag

  • Yfir 150 mm úrkoma mældist á sumum stöðum á Austfjörðum síðustu 48 klukkustundir.
  • Aurskriður féllu á vegi um Fagradal og Vattarnesveg.
  • Jarðvegur er mjög blautur og skriðuhætta enn til staðar.

Úrkomusamt hefur verið á Austfjörðum undanfarna daga og veðurviðvaranir vegna úrkomu hafa verið í gildi. Skriðuviðvaranir eru enn í gildi til klukkan 14 í dag. Þegar mikil rigning gengur yfir geta skriður fallið bæði meðan á úrkomunni stendur og nokkru eftir að henni lýkur.

Skriðuvakt Veðurstofunnar fékk fáar tilkynningar um skriður í gær, 26. nóvember. Það kemur ekki á óvart, enda getur myrkur og slæmt veður gert erfitt að fylgjast með aðstæðum í fjallshlíðum. Um klukkan fimm barst tilkynning frá Vegagerðinni um að bíll hefði ekið inn í aurskriðu á Fagradal (vegur nr. 1). Í kjölfarið var veginum lokað yfir nóttina. Seinna um kvöldið var Vattarnesvegur (vegur nr. 955) einnig lokað vegna aurskriða sem féllu á veginn.

Aurskriða sem féll á veginn um Fagradal í gærkvöldi, 26. nóvember. Mynd: Hlynur Sveinsson.

Aurskriða sem féll á veginn um Fagradal í gærkvöldi, 26. nóvember. Mynd: Hlynur Sveinsson.

Mikil úrkoma á Austfjörðum

Samkvæmt úrkomumælingum hófst mesta úrkoman á Austfjörðum aðfaranótt fimmtudagsins 26. nóvember. Hér fyrir neðan eru bráðabirgðatölur úr úrkomumælingum á völdum stöðum á Austfjörðum og Austurlandi. Tölurnar sýna uppsafnaða úrkomu á 48 klukkustundum, frá kl. 9 þann 25. nóvember til kl. 9 þann 27. nóvember.

Mælistaður

Úrkoma

Neskaupstaður

148,7 mm

Innri-Botnar, Seyðisfirði

140,9 mm

Fáskrúðsfjörður

147,9 mm

Seyðisfjörður (bærinn)

137,6 mm

Þórudalur

121 mm

Hallormsstaður

89 mm

Eskifjörður

87,3 mm

Dalatangi

75,8 mm

Hánefsstaðir (mönnuð stöð)

122,1 mm

 

Úrkomumælingar á Suðausturlandi, þar sem skriðuviðvaranir eru einnig enn í gildi, sýna hins vegar minni úrkomu en búist hafði verið við. Það gæti skýrst af því að meiri úrkoma féll til fjalla, þar sem engar mælistöðvar eru til að nema hana.

Útlit fyrir áframhaldandi úrkomu

Veðurspá gerir ráð fyrir áframhaldandi vætutíð í dag og um helgina. Í dag, föstudag, má búast við skúrum í sunnanátt.

Á morgun, laugardag, kemur lægð upp sunnan úr hafi og dýpkar mjög hratt á leið sinni yfir landið til norðvesturs. Þar sem lægðin er lítil að umfangi er erfitt að spá nákvæmlega fyrir um feril hennar og hún getur breytt um stefnu með litlum fyrirvara. Lægðinni fylgir úrkoma í formi rigningar og slyddu, en snjókomu má búast við til fjalla.

Á sunnudag er útlit fyrir heldur rólegra veður með skúrum. Þá kólnar einnig og því má búast við að hluti úrkomunnar falli sem snjór til fjalla, en áfram verði rigning á láglendi.

Jarðvegur mjög blautur og viðkvæmur

Jarðvegur er nú mjög blautur og því viðkvæmur fyrir frekari úrkomu. Hreyfingar í jarðvegi og hlíðum geta því átt sér stað með litlum fyrirvara. Búast má við jarðvegsskriðum í bröttum hlíðum, grjóthruni og aurskriðum, bæði í farvegum og úr opnum hlíðum.

Mikilvægt er að sýna aðgát, fylgjast vel með umhverfinu og forðast að dvelja undir bröttum hlíðum. Einnig getur rof aukist við læki og ár þegar vatn rennur um bakka þeirra. Slíkt getur valdið því að lækir verði gruggugir eða taki lit. Það þarf þó ekki endilega að vera vísbending um skriðuföll, þar sem jarðvegsefni skolast oft einfaldlega með vatninu til sjávar.

Staðan á Seyðisfirði

Talsverð úrkoma mældist á Seyðisfirði í gær. Mælikerfi Skriðuvaktarinnar sýna hækkandi vatnsstöðu í borholum þar sem fylgst er með grunnvatnsstöðu í Botnunum. Búast má við að grunnvatnsstaðan hækki enn á næstu dögum.

Mælitæki sem fylgjast með hreyfingum í hlíðunum sýna hins vegar engar breytingar.