22.11.2026
Mjög hvass fyrripartur
Það hefur blásið hressilega sunnan- og vestanlands í nótt og heldur áfram fram eftir degi. Hvassast hefur verið á suðvesturhorninu, þar sem mælst hefur stormur (meðalvindur meira en 20 m/s) á nokkrum mælistöðvum. Með veðrinu fylgir rigning sem einkum er bundin við sunnan- og vestanvert landið. Síðdegis dregur smám saman úr vindinum og í kvöld lægir svo um munar vestast á landinu. Það hefur hlýnað með sunnanáttinni og hitinn í dag verður á bilinu 5 til 10 stig.
Á morgun er spáð suðaustan strekkingi eða jafnvel allhvössum vindi með rigningu eða súld, en lengst af þurrt á Norður- og Norðausturlandi. Hiti breytist lítið.
Á þriðjudag og miðvikudag er síðan áfram suðlæg átt í kortunum, þótt vindhraðinn verði minni en dagana á undan. Útlit fyrir rigningu með köflum, en áfram þurrt að mestu norðanlands.