20.11.2026
Rysjótt og vætusamt í lok vikunnar, hlýnandi veður.
Það var hægur vindur á landinu í nótt og víða kalt, frost mældist 16 stig við Mývatn og á Grímsstöðum á Fjöllum. Í dag fer aðeins að blása af suðaustri, með skúrum eða éljum á víð og dreif. Hitinn þokast upp á við, 1 til 5 stig sunnan- og vestanlands seinnipartinn. Áfram frost í öðrum landshlutum, þó minna en síðustu daga. Lægð suðvestur af landinu þokast norðvestur og í kvöld verður orðið allhvasst við suðvesturströndina. ,
Á morgun nálgast ný lægð úr suðri og verður heldur nærgöngulli. Annað kvöld hvessir með rigningu eða slyddu og slær jafnvel í storm suðvestantil. Jafnframt hlýnar í veðri.
Á sunnudag er spáð suðaustan hvassviðri með rigningu sunnan- og vestantil, en fer að lægja vestanlands seinnipartinn. Hiti víða 5 til 10 stig.