Fara á forsíðu
Viðvaranir
  1. Forsíða
  2. Frá vaktinni
  3. Suðaustan hvassviðri eða stormur með köflum fram að helgi

24.11.2026

Suðaustan hvassviðri eða stormur með köflum fram að helgi

Farið er að draga úr vindi og úrkomu á landinu, en áfram strekkingur eða allhvasst og rigning eða súld austanlands fram eftir morgundeginum.

Í fyrramálið er vaxandi suðaustanátt og rigning suðvestan- og vestantil og síðdegis á morgun taka gular vindaviðvaranir gildi á Suðurlandi, Faxaflóa, á Breiðafirði vegna Snæfellsness og á Miðhálendinu vegna lægðar á Grænlandshafi sem sendir yfir okkur lægðadrag. Þar gera spár ráð fyrir vindi á bilinu 15-23 m/s, en nær fjöllum og á hálendinu geta hviður farið yfir 30 m/s. Þessi veðurskil fara þó fremur hratt yfir landið, og annað kvöld verður farið að draga úr vindi vestanlands, en þá er tekið að bæta í vind austanlands vegna lægðar sem nálgast okkur úr suðri og er útlit fyrir því að skil hennar muni ganga á land snemma á fimmtudagsmorgun.

Þá fer að bæta í vind og úrkomu austantil, en talsverðri eða mikilli úrkomu er spáð á Suðaustur- og Austurlandi þó víða verði vætusamt. Síðdegis á fimmtudag verður tekið að hvessa á vesturhluta landsins og er útlit fyrir að hvassviðri eða stormur verði í flestum landshlutum á meðan skilin eru að ganga yfir. Vegfarendur eru því hvattir til að fylgjast með viðvörunum þegar nær dregur.

Um og eftir hádegi á föstudag ætti lægðin að búin að færa sig nær Suðausturströnd Grænlands og þá dregur úr vindi og úrkomu í flestum landshlutum.

Í þessum lægðagangi öllum verður fremur hlýtt loft yfir landinu, en síðdegis á föstudag tekur að kólna á ný og er útlit fyrir fremur tíðindalitla helgi með éljum sunnanlands.