23.11.2026
Suðlæg átt og vinda- og úrkomusamt í vikunni
Hæð yfir Skandinavíu og þrálátur lágþrýstingur (lægðagangur) vestan við Ísland munu ráða veðrinu hjá okkur í vikunni sem nú er að hefjast. Suðlæg átt verður ríkjandi og stundum hvasst. Einnig verður væntanlega úrkomusamt, en eins og svo oft áður mun lítið af úrkomunni ná yfir á norðanvert landið í sunnanáttinni.
Í dag er spáð suðaustanátt, nokkuð víða kaldi eða strekkingur og rigning, en þurrt að mestu norðan- og norðaustanlands. Það hlýnaði á landinu í gær og þau hlýindi halda áfram í dag með hita á bilinu 5 til 10 stig.
Í fyrramálið er áfram spáð suðaustanátt og strekkingur eða allhvass algengasti vindstyrkurinn. Enn má búast við rigningu, en úrkomulítið fyrir norðan. Síðdegis á morgun dregur úr vindi og það berst kaldara loft yfir vestanvert landið og þar má því búast við skúrum eða éljum.