Fara á forsíðu
Viðvaranir
  1. Forsíða
  2. Frá vaktinni
  3. Suðlægar áttir og vætusamt næstu daga.

22.11.2026

Suðlægar áttir og vætusamt næstu daga.

Það blés hressilega fram yfir hádegi, einkum suðvestanlands, en veðurviðvaranir vegna vinds voru í gildi sunnan- og vestanalnmds og er enn í gildi fyrir miðhálendið. Rigndi einnig talsvert á þeim slóðum og mun áfram rigna fram yfir miðnætti. Hægari vindar voru norðaustantil og þurrt.


Á morgun er spáð suðaustanstrekkingi eða allhvössum vindi með rigningu eða súld, en lengst af þurru á Norður- og Austurlandi. Áfram hlýtt í veðri með hita að 10 stigum þegar best lætur.


Á þriðjudag og miðvikudag er síðan áfram suðlæg átt í kortunum, þótt vindhraðinn verði minni en dagana á undan. Útlit fyrir rigningu með köflum, en áfram þurrt að mestu norðanlands. Á fimmtudagsmorgun nálgast víðáttumikil og dýpkandi lægð, sem mun líklega valda suðaustanstormi með talsverðri rigningu sunnan heiða.