Fara á forsíðu
Viðvaranir
  1. Forsíða
  2. Frá vaktinni
  3. Sunnan stormur suðaustantil og á Norðurlandi

28.11.2026

Sunnan stormur suðaustantil og á Norðurlandi

Kröpp lægð nálgast nú úr suðaustri með úrkomu í flestum landshlutum, ýmist rigningu, slyddu eða snjókomu. Austan lægðarmiðjunnar er öflugur sunnan vindstrengur, hann gengur yfir suðausturhluta landsins í kvöld og veldur þar skammvinnum sunnan stormi, og undir miðnætti mun hann valda stormi eða roki og byljóttu veðri á Mið-Norðurlandi. Seint í nótt hvessir einnig um tíma á Vestfjörðum. Gular viðvaranir hafa verið gefnar út vegna þessa veðurs á Suðausturlandi, Norðurlandi eystra og Vestfjörðum, en á Norðurlandi vestra tekur appelsínugul viðvörun gildi seint í kvöld.

Veðrið gengur niður í nótt og fyrramálið og á morgun er útlit fyrir hæglætis veður landinu, víða suðaustan gola eða kaldi og él, en lengst af úrkomulítið fyrir norðan. Hiti kringum frostmark.