20.11.2026
Víða ísstíflur á Norðurlandi
Vatnhsæð í Laxá í Aðaldal við Helluvað hefur lækkað talsvert í dag og spár gera ráð fyrir hægt hlýnandi veðri næstu daga og líkur á að ístíflurnar hjaðni hægt og rólega á því tímabili. Veðurstofan mælist til þess að fólk sýni aðgát við árbakka og tilkynni Veðurstofu verði það vart við ísstíflur og sérstaklega staðbundin flóð.