Spá um snjóflóðahættu - Suðvesturhornið

  • þri. 30. apr.

    Lítil hætta
  • mið. 01. maí

    Lítil hætta
  • fim. 02. maí

    Lítil hætta

Mikið hefur tekið upp til fjalla í hlýindum undanfarið og snjóþekjan er talin nokkuð stöðug. Lítill snjór er til fjalla en ekki er útilokað að litlar votar spýjur geti fallið efst til fjalla.

Spáin er gerð fyrir stór landsvæði og þarf ekki að vera lýsandi fyrir snjóflóðahættu í byggð. Hún er einkum gerð með ferðafólk í fjalllendi í huga og tekur bæði til snjóflóða af mannavöldum og veðurtengdra snjóflóða.

Lagskipting snævar og snjóþekjan

Snjórinn settist vel eftir hláku og rigningu um þar síðustu helgi og dægursveiflur síðan og er snjóþekjan víðast talin nokkuð stöðug. Snjógryfja úr Hengli, 25. apríl sýndi jafnhita, stöðuga snjóþekju. Lítill snjór er til fjalla en þó nóg til þess að lítil lausaflóð geti fallið í sólbökuðum hlíðum.

Nýleg snjóflóð

Engar tilkynningar um nýleg snjóflóð.

Veður og veðurspá

Hæglætis veður næstu daga. Áframhaldandi hlýindi og dægursveiflur.

Spá gerð: 29. apr. 14:09. Gildir til: 01. maí 19:00.




Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica