Spá um snjóflóðahættu - Suðvesturhornið

  • þri. 21. maí

    Lítil hætta
  • mið. 22. maí

    Lítil hætta
  • fim. 23. maí

    Lítil hætta

Vorsnjór er til fjalla, almennt einsleitur og stöðugur. Ekki er útilokað að útivistarfólk á ferð í bröttum, sólbökuðum brekkum geti sett af stað lausasnjóflóð.

Spáin er gerð fyrir stór landsvæði og þarf ekki að vera lýsandi fyrir snjóflóðahættu í byggð. Hún er einkum gerð með ferðafólk í fjalllendi í huga og tekur bæði til snjóflóða af mannavöldum og veðurtengdra snjóflóða.

Lagskipting snævar og snjóþekjan

Lítið er eftir af snjó á láglendi en í fjöllum inn til landsins eru fannir með rökum og einsleitum snjó sem talinn orðinn nokkuð stöðugur eftir umhleypingar. Útivistarfólk í bröttum brekkum með mjúkum blautum snjó gæti þó sett af stað vot lausasnjóflóð, einkum síðdegis á hlýjum og sólríkum dögum.

Nýleg snjóflóð

Engar tilkynningar um nýleg snjóflóð.

Veður og veðurspá

Suðlægar áttir, hægur vindur og lítisháttar skúrir næstu daga. Milt í veðri og möguleiki á vægu næturfrosti.

Spá gerð: 20. maí 10:52. Gildir til: 22. maí 19:00.




Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica