Spá um snjóflóðahættu - Tröllaskagi utanverður
-
lau. 04. maí
Nokkur hætta -
sun. 05. maí
Nokkur hætta -
mán. 06. maí
Lítil hætta
Snjór sjatnaði í hlýindum þar síðustu helgi en þó minna í efstu fjöllum, þar er lagskiptur snjór og mögulega enn veikleiki í snjóþekju. Snjór verður fyrir áhrifum dægursveiflu og sólgeislunar, sérstaklega í suðlægum viðhorfum.
Snjóflóðavandi á svæðinu
-
Tegund
-
HæðOfan 800 m.
-
Viðhorf
-
Líkur
-
Stærð
Veikleiki er líklega enn til staðar efst til fjalla þar sem hlákuáhrif hafa verið minni.
-
Tegund
-
HæðNeðan 600 m.
-
Viðhorf
-
Líkur
-
Stærð
Sólbráð yfir daginn gæti komið af stað votum flóðum.
Lagskipting snævar og snjóþekjan
Hláka og hlýindi byrjuðu í síðustu viku og snjór hefur sjatnað og styrkst að einhverju leiti, en talsverður snjór er enn hátt til fjalla og veikleikar gætu hafa varðveist. Við könnun á snjóalögum í Burstabrekkudal í síðustu viku kom ójafnt brot við miðlungs álag í samþjöppunarprófi á mörkum hjarns og nýrri snjós, en útvíkkað próf gaf enga niðurstöðu. Dægursveifla í hita og sólbráð hefur talsverð áhrif á efstu lög snjósins og því er möguleiki á votum flóðum, sérstaklega í suðlægum viðhorfum.
Nýleg snjóflóð
Víða eru yfirborðshreyfingar tengdar sólbráð og stórt vott flekaflóð féll í Flókadal síðustu helgi. Stórt vott lausasnjóflóð féll einnig í Hestskarði í Siglufirði í hlýindum í síðustu viku.
Veður og veðurspá
Hæglætis veður um helgina og úrkomulaust. Dægursveiflur í hitastigi og hlýindi í kortunum.