Norræn skýrsla um AMOC: Þörf á öflugri loftslagsaðgerðum, vöktun og viðbúnaði

05.02.2026

Norræn skýrsla um AMOC: Þörf á öflugri loftslagsaðgerðum, vöktun og viðbúnaði

Efnisyfirlit

Draga þarf úr losun gróðurhúsalofttegunda, tryggja langtímavöktun og undirbúa samfélög fyrir mögulegar breytingar á veltihringrás Atlantshafsins, AMOC. Þetta er meðal ráðlegginga nýrrar norrænnar skýrslu sem fjallar um mögulegt hrun hringrásarinnar og áhrif þess á náttúru og samfélög á Norðurlöndum.

Skýrslan A Nordic Perspective on AMOC Tipping var birt 5. febrúar 2026 á útgáfuvef Norrænu ráðherranefndarinnar. Hún tekur saman stöðu þekkingar, dregur fram óvissu og setur fram ráðleggingar um loftslagsaðgerðir, vöktun og viðbúnað.

Forsíða skýrslunnar „A Nordic Perspective on AMOC Tipping“. Titillinn er vinstra megin en hægra megin er ljósmynd af ís á sjó við snævi þakta strandhlíð.

Forsíða norrænu skýrslunnar A Nordic Perspective on AMOC Tipping: Impacts and Strategies for Prevention and Governance, TemaNord 2025:504, um möguleg vendipunktaskil í veltihringrás Atlantshafsins (AMOC), áhrif þeirra og viðbrögð.


Breytingar á AMOC geta haft víðtæk áhrif

Veltihringrás Atlantshafsins, AMOC, er umfangsmikið kerfi yfirborðs- og djúpstrauma sem flytur varma frá suðlægum breiddargráðum til Norður-Atlantshafsins. Hún á mikilvægan þátt í að móta loftslag Norðurlanda.

Gert er ráð fyrir að hlýnun jarðar veiki hringrásina. Óvissa er hins vegar um hvort og hvenær hún gæti farið yfir vendipunkt sem leiddi til mun veikara ástands eða hruns.

Slík breyting gæti valdið kólnun í Norður-Evrópu þrátt fyrir áframhaldandi hnattræna hlýnun. Áhrifin ráðast meðal annars af því hversu mikil hlýnun hefur orðið þegar breytingin verður. Afleiðingarnar gætu komið fram í vistkerfum, matvælaframleiðslu, orkukerfum og lífsviðurværi fólks.

„AMOC er lykilþáttur í loftslagskerfi Norðurlanda. Þótt framtíð AMOC sé óviss er möguleiki á hraðri veikingu eða jafnvel hruni áhætta sem við verðum að taka alvarlega,“ segir Aleksi Nummelin, rannsóknarprófessor við Veðurstofu Finnlands.

„Skýrslan dregur saman nýjustu vísindalegu þekkingu og dregur fram raunhæfar aðgerðir í loftslagsmálum, vöktun og viðbúnaði.“

Draga úr losun og takmarka hlýnun

Höfundar leggja áherslu á öflugar loftslagsaðgerðir sem leiða til kolefnishlutleysis og síðar neikvæðrar nettólosunar.

Óvissa um vendipunkt AMOC kallar að þeirra mati á varúð. Frekari hlýnun og lengri tími yfir 1,5 °C markinu auka hættuna á hruni hringrásarinnar.

Tryggja vöktun og þróa viðvörunarkerfi

Tryggja þarf langtímafjármögnun lykilvöktunarkerfa og þróa viðvörunarkerfi fyrir AMOC sem sameinar athuganir og líkanreikninga.

Upplýsingarnar þurfa að tengjast ákvarðanatöku svo hægt sé að bregðast tímanlega við. Skýrslan bendir meðal annars á tækifæri til samræmingar í tengslum við EU Ocean Act, frumkvæði Evrópusambandsins um málefni hafsins.

Undirbúa samfélög fyrir ólíkar sviðsmyndir

Mögulegt hrun AMOC gæti haft áhrif á Norðurlönd sem væru að hluta andstæð þeim sem almennt er gert ráð fyrir vegna hnattrænnar hlýnunar.

Því þarf sveigjanlega aðlögun sem nýtist við ólíkar framtíðarsviðsmyndir. Höfundar kalla eftir því að mögulegt hrun AMOC sé tekið alvarlega í áhættustjórnun á öllum stjórnsýslustigum.

Mikil óvissa um mörk hlýnunar og tímaramma

Halldór Björnsson, fagstjóri veðurs og loftslags hjá Veðurstofu Íslands og einn höfunda skýrslunnar, lýsir óvissunni um þróun hringrásarinnar:

„Meginatriði skýrslunnar eru að veltihringrásin (AMOC) mun líklega hægja á sér á öldinni. Þessi samdráttur getur síðan leitt til þess að veltihringrásin stöðvist, fyrst sá hluti hennar sem myndar djúpsjó suðvestan við landið, og síðar sá hluti sem er norðaustan við landið. Vitað er að hlýnun jarðar eykur líkurnar á því að þetta gerist en ekki er vitað við hvaða mörk hlýnunar þessi atburðarás verður óstöðvandi.“

„Mat á þeim mörkum liggur á bilinu 1,4–8 °C hnattrænnar hlýnunar. Eins er ekki vitað hversu hratt hringrásin stöðvast, mat á því nær frá 15 árum til 300 ára. Atburðarás sem þessi myndi líklegast gerast á næstu öld þó að ekki sé hægt að útiloka að hún hefjist fyrr. Líkurnar eru óþekktar en skýrslan rekur mögulegar afleiðingar fyrir Norðurlöndin, bæði hvað varðar vistkerfi í sjó og efnahag. Í verstu sviðsmyndum eru afleiðingarnar mjög neikvæðar. Þó að óvissa um mögulegt hrun AMOC sé mjög mikil má draga verulega úr líkum þess með því að takmarka losun gróðurhúsalofttegunda. Skýrslan tekur því undir ákall 44 loftslagsvísindamanna sem afhent var Norrænu ráðherranefndinni á Arctic Circle árið 2024 að Norðurlönd beiti sér fyrir áköfum samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda.“

Norræn og alþjóðleg sérþekking sameinuð

Vinna við skýrsluna hófst á vinnustofunni Nordic Tipping Week, sem haldin var 21.–24. október 2025 í Helsinki og Rovaniemi í Finnlandi. Hún naut stuðnings Norrænu ráðherranefndarinnar og tengdist áherslu finnsku formennskunnar á seiglu.

Þar komu saman vísindamenn á ólíkum sviðum rannsókna á AMOC og áhrifum þess, allt frá haffræðingum og eðlisfræðingum til félagsvísindamanna. Skýrslan var síðan unnin í samstarfi norrænna og alþjóðlegra rannsóknastofnana. Veðurstofa Finnlands samræmdi vinnuna.

Vinnustofan og skýrslan voru að hluta til innblásnar af opnu bréfi 44 loftslagsvísindamanna til Norrænu ráðherranefndarinnar árið 2024. Þar var bent á að hættan á hruni AMOC hefði hugsanlega verið vanmetin.


Skýringar á helstu hugtökum

AMOC – veltihringrás Atlantshafsins
AMOC stendur fyrir Atlantic Meridional Overturning Circulation. Hún er umfangsmikið kerfi yfirborðs- og djúpstrauma sem flytur varma norður eftir Atlantshafi. Golfstraumurinn tengist þessu kerfi en er ekki það sama og AMOC.

Vendipunktur
Mörk þar sem lítil frekari breyting getur komið af stað stórfelldri breytingu á kerfi. Breytingin getur orðið erfið viðureignar eða óafturkræf á tímakvarða mannsins, þótt hún taki langan tíma að ganga að fullu eftir.

Loftslagsaðgerðir
Aðgerðir til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda eða auka bindingu þeirra og takmarka þannig hnattræna hlýnun.

Aðlögun að loftslagsbreytingum
Ráðstafanir til að draga úr skaðlegum áhrifum loftslagsbreytinga og styrkja viðnámsþrótt samfélaga, innviða og vistkerfa.

Vöktun og viðvörunarkerfi
Vöktun byggist á reglubundnum mælingum og athugunum. Viðvörunarkerfi nýta mæligögn og líkanreikninga til að greina merki um breytingar og styðja tímanlega ákvarðanatöku.

1,5 °C markið og yfirhlaup
Parísarsamkomulagið miðar að því að halda hnattrænni hlýnun vel innan við 2 °C og leitast við að takmarka hana við 1,5 °C miðað við tímann fyrir iðnbyltingu. Yfirhlaup (overshoot) merkir að hlýnun fari tímabundið yfir tiltekin mörk.

Breytingar á AMOC geta haft víðtæk áhrif

Draga úr losun og takmarka hlýnun

Tryggja vöktun og þróa viðvörunarkerfi

Undirbúa samfélög fyrir ólíkar sviðsmyndir

Mikil óvissa um mörk hlýnunar og tímaramma

Norræn og alþjóðleg sérþekking sameinuð

Skýringar á helstu hugtökum