Veðurstofan þjónustar allt samfélagið með því að vakta, gefa út spár og viðvaranir vegna veðurs, jarðskjálfta, eldgosa, hlaupa, vatnsflóða og ofanflóða. Markmið Veðurstofunnar er að efla öryggi og áfallaþol samfélagsins vegna náttúruvár og áhrifa loftslagsbreytinga með gagnasöfnun, varðveislu gagna, greiningu, rannsóknum, ráðgjöf og miðlun um náttúrufar á Íslandi. Veðurstofa Íslands er opinber stofnun sem heyrir undir umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið.