08.07.2026
Hvernig verður sólmyrkvi?

Almyrkvi á sólu með sýnilegri sólkórónu, tekinn í Exmouth í Vestur-Ástralíu. Mynd: Eclipse Chasers / Unsplash.
Sólmyrkvi verður þegar tunglið gengur á milli jarðar og sólar og skyggir á sólina að hluta eða öllu leyti. Frá jörðu séð getur sólmyrkvi birst með ólíkum hætti eftir því hve stóran hluta sólarinnar tunglið hylur og hvar áhorfandinn er staddur.
Frá jörðu séð virðast sólin og tunglið álíka stór á himninum. Sólin er um 400 sinnum stærri að þvermáli en tunglið, en jafnframt um 400 sinnum lengra frá jörðu. Tunglið getur því hulið alla sólskífuna þegar afstaðan er rétt.
Sólmyrkvar verða aðeins við nýtt tungl, en ekki við hvert nýtt tungl. Ástæðan er sú að braut tunglsins hallar miðað við braut jarðar um sólina. Oftast fer tunglið því ofan eða neðan við sólina frá okkur séð.
Á Íslandi má finna frásagnir af sólmyrkvum í annálum, dagbókum og öðrum rituðum heimildum. Þær sýna bæði hvernig myrkvarnir birtust og hvernig fólk upplifði og túlkaði þessi óvenjulegu náttúrufyrirbæri.
Hvaða áhrif hafa veður og skýjafar á upplifun sólmyrkva?
Skýjafar ræður miklu um það hvað sést við sólmyrkva. Í heiðskíru veðri má fylgjast með tunglinu færast fyrir sólina og við almyrkva getur sólkórónan orðið sýnileg, ásamt björtum stjörnum og reikistjörnum.
Þunn ský geta hulið smáatriði en birtubreytingarnar samt verið greinilegar. Þykk ský geta hins vegar skyggt alveg á sólina. Þá sést myrkvinn sjálfur ekki, þótt umhverfið geti dimmt verulega meðan á almyrkva stendur.
Sólmyrkvi getur einnig haft áhrif á veðrið næst yfirborði jarðar. Þegar sólargeislun minnkar getur loft kólnað, en hversu mikil kólnunin verður ræðst meðal annars af skýjahulu og öðrum veðuraðstæðum.
Við val á útsýnisstað þarf líka að huga að landslagi. Fjöll og aðrar hindranir geta skyggt á sólina, sérstaklega þegar hún er lágt á lofti.
Skýjahula kemur ekki í stað augnverndar þegar horft er beint á sólina.
Hver er munurinn á deildarmyrkva, hringmyrkva og almyrkva?
Deildarmyrkvi verður þegar tunglið hylur aðeins hluta sólskífunnar. Hann sést á mun stærra svæði en almyrkvi eða hringmyrkvi.
Hringmyrkvi verður þegar tunglið virðist minna en sólin og nær því ekki að hylja hana alla. Þá sést bjartur hringur sólarinnar umhverfis dökka skífu tunglsins.
Almyrkvi verður þegar tunglið hylur alla sólskífuna. Hann sést aðeins innan þröngrar almyrkvaslóðar á yfirborði jarðar. Þar getur himinninn dökknað og sólkórónan, ysti hluti lofthjúps sólarinnar, orðið sýnileg.
Einnig verða sjaldgæfir blandaðir myrkvar sem birtast sem hringmyrkvar á hluta myrkvaslóðarinnar en almyrkvar annars staðar.

Þrjár megingerðir sólmyrkva: deildarmyrkvi, hringmyrkvi og almyrkvi. Myndir: Þórður Arason, Wikimedia Commons og NASA.
Hvað getur sést og skynjast við almyrkva?
Við almyrkva breytist birtan hratt og umhverfið getur tekið á sig óvenjulegan blæ. Þegar tunglið hylur sólskífuna alveg getur sólkórónan orðið sýnileg og bjartar stjörnur og reikistjörnur komið í ljós. Dýr geta einnig brugðist við rökkrinu eins og kvöld sé að koma.
Rétt fyrir og eftir almyrkvann geta sést skammvinn ljósfyrirbæri við jaðar tunglsins. Hvað sést hverju sinni ræðst meðal annars af skýjafari, staðsetningu áhorfandans og því hversu lengi almyrkvinn stendur.
Birtan breytist og náttúran bregst við
Ormaskuggar, blossaperlur og demantshringur
Sólkóróna, stjörnur og sólkerfið
Regnbogi, norðurljós, loftsteinadrífa og augnablikið
Sólmyrkvar í sögu og minni
Sólmyrkvar hafa ekki aðeins verið viðfangsefni stjörnufræði. Í gegnum tíðina hafa þeir líka vakið undrun, ótta og forvitni og verið tengdir við sagnir, trúarhugmyndir, orrustur, dauða konunga og stóra samtímaatburði.
Þeir segja því ekki aðeins sögu himintungla, heldur líka sögu þess hvernig fólk hefur skráð, túlkað og munað óvenjuleg náttúrufyrirbæri á hverjum tíma.
Sagnir, orrustur og konungar
Frásögn í Jósúabók um að sólin hafi stöðvast hefur verið tengd hringmyrkva sem sást í Gíbeon, milli Jerúsalem og Ramallah, árið 1207 f.Kr. Annað þekkt dæmi er myrkvi árið 585 f.Kr., sem hefur verið tengdur við frásagnir af því að stríð milli Lýdíumanna og Meda hafi stöðvast og samið hafi verið um frið.
Í norrænu samhengi hafa myrkvar meðal annars verið tengdir við goðsögnina um dauða Baldurs hins hvíta. Sólmyrkvar hafa einnig verið tengdir dauða konunga, til dæmis dauða Ólafs Haraldssonar Noregskonungs í Stiklastaðaorrustu árið 1030 og dauða Hinriks I Englandskonungs árið 1133.
Sólmyrkvar í íslenskum heimildum
Á Íslandi hafa almyrkvar og hringmyrkvar sést í gegnum aldirnar og heimildir um þá má finna í annálum, dagbókum, veðurbókum og öðrum rituðum heimildum.
Almyrkvinn 12. ágúst 2026 verður þrettándi almyrkvinn yfir Íslandi frá upphafi byggðar á landinu. Á síðustu tveimur öldum hafa þrír almyrkvar sést frá landinu, árin 1833, 1851 og 1954. Eftir 2026 verður langt hlé fram að næsta almyrkva yfir Íslandi, sem verður árið 2196.
Myrkvinn sem gleymdist
Heimildirnar sýna að náttúrufyrirbæri lifa misjafnlega í minni fólks. Sumir myrkvar voru vel skráðir og urðu hluti af sameiginlegri sögu, en aðrir féllu í skuggann af samtímaatburðum.
Almyrkvinn 28. júlí 1851 er dæmi um slíkan myrkva. Hann gekk yfir norðaustanvert landið en virðist hafa gleymst að miklu leyti. Sama ár fór þjóðfundurinn fram og átök um stjórnskipan landsins urðu mun fyrirferðarmeiri í sögunni en myrkvinn sjálfur.
Almyrkvinn 12. ágúst 2026

Almyrkvaslóðin 12. ágúst 2026 lá yfir vestanvert Ísland og áfram suður yfir Atlantshaf og Evrópu. Mynd: NASA’s Scientific Visualization Studio / Ernie Wright. Aðlöguð fyrir vefbirtingu.
Almyrkvi á sólu gekk yfir vestanvert Ísland 12. ágúst 2026. Almyrkvaslóðin lá yfir hluta Vestfjarða, Vesturlands, höfuðborgarsvæðisins og Reykjanesskaga. Utan hennar var deildarmyrkvi.
Lengd almyrkvans var mismunandi eftir staðsetningu. Samkvæmt útreikningum Þórðar Arasonar stóð hann í um eina mínútu í Reykjavík en rúmar tvær mínútur á Bjargtöngum. Þetta var fyrsti almyrkvinn sem gekk yfir Ísland síðan 1954.
Á kortinu má sjá legu almyrkvaslóðarinnar yfir Ísland og áfram yfir Norður-Atlantshaf til Spánar.
Heimildir
Greinin byggir einkum á grein Þórðar Arasonar, Sólmyrkvar á Íslandi, í Náttúrufræðingnum, auk skýrslna, korta og vefefnis hans um sólmyrkva á Íslandi. Hér að neðan eru tenglar á helstu heimildir og ítarefni.
Sólmyrkvar á Íslandi – yfirlit um ritaðar samtímaheimildir er skýrsla Veðurstofu Íslands, VÍ 2026-003, eftir Þórð Arason. Í skýrslunni er fjallað um ritaðar heimildir um almyrkva og hringmyrkva á Íslandi.
Sólmyrkvar á Íslandi er grein í Náttúrufræðingnum eftir Þórð Arason. Fjallað er um sólmyrkva sem hafa sést eða munu sjást frá Íslandi, almyrkvann 12. ágúst 2026, kort, tímasetningar, sögulegt samhengi og áhrif veðurs og skýjafars.
Almyrkvinn 2026 er vefur eftir Þórð Arason með ítarlegum upplýsingum um almyrkvann 12. ágúst 2026. Þar eru meðal annars kort af almyrkvaslóðinni, tímasetningar fyrir valda staði, stjörnukort, upplýsingar um fyrirbæri sem geta sést við almyrkva og umfjöllun um áhrif skýjafars. Á vefnum er einnig að finna ítarlegar upplýsingar um alla sólmyrkva sem hafa sést eða munu sjást frá Íslandi frá árinu 1 til ársins 3000 e.Kr. Alls eru þeir 1.515 á þessu 3.000 ára tímabili. Langflestir eru litlir deildarmyrkvar, en frá Íslandi séð eru 40 þeirra hringmyrkvar og 26 almyrkvar.