Um Veðurstofu Íslands

Um Veðurstofu Íslands

Gervitunglamynd af snævi þöktu Íslandi. Ský hylja hluta norðanverðs landsins og mynda mynstur yfir hafinu umhverfis.

Eflum öryggi og áfallaþol samfélagsins í ört breytilegum heimi

Veðurstofan vaktar og gefur út spár og viðvaranir vegna veðurs, jarðskjálfta, eldgosa, hlaupa, vatnsflóða og ofanflóða. Veðurstofan styður einnig viðbrögð samfélagsins vegna náttúruvár og áhrifa loftslagsbreytinga með gagnasöfnun, varðveislu gagna, greiningu, rannsóknum og miðlun.