Spá um snjóflóðahættu - Austfirðir

  • sun. 28. apr.

    Nokkur hætta
  • mán. 29. apr.

    Nokkur hætta
  • þri. 30. apr.

    Nokkur hætta

Litlir vindflekar gætu verið til staðar á suðlægum viðhorfum. Síðustu helgi hlánaði og er snjóþekja talin nokkuð stöðug eftir dægursveiflu síðan.

Spáin er gerð fyrir stór landsvæði og þarf ekki að vera lýsandi fyrir snjóflóðahættu í byggð. Hún er einkum gerð með ferðafólk í fjalllendi í huga og tekur bæði til snjóflóða af mannavöldum og veðurtengdra snjóflóða.

Snjóflóðavandi á svæðinu

Vindflekar gætu hafa myndast á suðlægum viðhorfum í N-átt á laugardag.

Lagskipting snævar og snjóþekjan

Vindflekar gætu verið til staðar á suðlægum viðhorfum eftir él um helgina. Mikill snjór er enn til fjalla en mikið hefur tekið upp á láglendi síðustu daga. Snjóþekjan hefur styrkst í dægursveiflu síðustu daga.

Nýleg snjóflóð

Stór lausaflóð féllu í hlýindum í Hólmatindi og víðar á föstudag. Snjóflóð féllu víða í hláku um síðustu helgi, náttúruleg og af mannavöldum.

Veður og veðurspá

Hæglætisveður á sunnudag. Lítilsháttar él til fjalla og norðanátt á mánudag.

Spá gerð: 27. apr. 13:56. Gildir til: 29. apr. 19:00.




Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica