Spá um snjóflóðahættu - Eyjafjörður innanverður (tilraunaverkefni)

  • þri. 14. maí

    Lítil hætta
  • mið. 15. maí

    Lítil hætta
  • fim. 16. maí

    Lítil hætta

Snjór hefur sjatnaði í hlýindum en þó minna í efstu fjöllum, möguleiki á smá nýjum snjó í efstu fjöllum. Snjór verður fyrir áhrifum dægursveiflu og sólgeislunar, sérstaklega í suðlægum viðhorfum.

Spáin er gerð fyrir stór landsvæði og þarf ekki að vera lýsandi fyrir snjóflóðahættu í byggð. Hún er einkum gerð með ferðafólk í fjalllendi í huga og tekur bæði til snjóflóða af mannavöldum og veðurtengdra snjóflóða.

Snjóflóðavandi á svæðinu

Vot flóð geta fallið við sólbráð eða umferð fólks.

Lagskipting snævar og snjóþekjan

Snjór hefur blotnað og sjatnað talsvert, enn er talsverður snjór ofarlega til fjalla og snjór þar getur verið lagskiptur. Stöðugleiki snjós gæti minnkað yfir daginn með dægursveiflu og sólargeislun og því möguleiki á votum flóðum, sérstaklega í A-S vísandi hlíðum þar sem sól skín lengur. Möguleiki á nýjum snjó til fjalla eftir úrkomu helgarinnar.

Nýleg snjóflóð

Engar tilkynningar um nýleg snjóflóð.

Veður og veðurspá

Suðlægð eða breytilega átt og bjart og þurrt veður næstu daga.

Spá gerð: 13. maí 13:23. Gildir til: 15. maí 19:00.




Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica