Spá um snjóflóðahættu - Suðvesturhornið

  • þri. 14. maí

    Lítil hætta
  • mið. 15. maí

    Lítil hætta
  • fim. 16. maí

    Lítil hætta

Mikið hefur tekið upp til fjalla í hlýindum og rigningu undanfarið og snjóþekjan er talin nokkuð stöðug. Lítill snjór er til fjalla en ekki er útilokað að litlar votar spýjur geti fallið efst til fjalla.

Spáin er gerð fyrir stór landsvæði og þarf ekki að vera lýsandi fyrir snjóflóðahættu í byggð. Hún er einkum gerð með ferðafólk í fjalllendi í huga og tekur bæði til snjóflóða af mannavöldum og veðurtengdra snjóflóða.

Snjóflóðavandi á svæðinu

Lítil vot snjóflóð geta farið af stað við sólbráð eða umferð fólks.

Lagskipting snævar og snjóþekjan

Snjór hefur sjatnað eftir hlýindi og hláku undanfarið og snjóþekjan er nokkuð stöðug. Litlar votar spýjur geta fallið þegar rignir.

Nýleg snjóflóð

Engar tilkynningar um nýleg snjóflóð.

Veður og veðurspá

Tíðindalítið veður en smá skúrir á fimmtudag og fremur hlýtt í veðri.

Spá gerð: 13. maí 13:25. Gildir til: 15. maí 19:00.




Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica