Spá um snjóflóðahættu - Norðanverðir Vestfirðir

  • lau. 27. apr.

    Lítil hætta
  • sun. 28. apr.

    Lítil hætta
  • mán. 29. apr.

    Lítil hætta

Skíðamaður setti af stað lausaflóð á Seljalandsdal á fimmtudag. Votar spýjur gætu fallið.

Spáin er gerð fyrir stór landsvæði og þarf ekki að vera lýsandi fyrir snjóflóðahættu í byggð. Hún er einkum gerð með ferðafólk í fjalllendi í huga og tekur bæði til snjóflóða af mannavöldum og veðurtengdra snjóflóða.

Snjóflóðavandi á svæðinu

Lagskipting snævar og snjóþekjan

Búast má við að snjóþekjan sé að verða nokkuð einsleit eftir frost og þýðu síðustu daga. Snjógryfja í Steiniðjugili 23.4. sýndi fremur einsleitan og jafnhita snjó. Þó gætu votar spýjur fallið á svæðinu og enn borið á lagskiptingu í snjónum hátt til fjalla. Tvö stór krapaflóð féllu í bröttum árfarvegum eftir að stytti upp í Ísafjarðardjúpi. Búist er við að það dragi úr krapaflóðahættu með kólnandi veðri.

Nýleg snjóflóð

Skíðamaður setti af stað lausaflóð á Seljalandsdal á fimmtudag. Allnokkur snjóflóð féllu í hlákunni um síðustu helgi. Stórt krapaflóð féll í Seyðisfirði að kvöldi 21. apríl, og annað stórt krapaflóð féll í Hestfirði að kvöldi 22. apríl.

Veður og veðurspá

Norðaustlægar áttir næstu daga. Hiti yfir frostmarki á láglendi næturfrost til fjalla.

Spá gerð: 27. apr. 07:53. Gildir til: 29. apr. 19:00.




Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica