1. Forsíða
  2. Fréttir
  3. Frá mælitæki á skjá

26.11.2026

Nýtt

Frá mælitæki á skjá

Efnisyfirlit

skjáskot af nýjum vef

Hvað þarf til að koma mælingum, spám og viðvörunum til hundraða þúsunda notenda og halda upplýsingunum aðgengilegum þegar náttúruöflin á Íslandi láta finna fyrir sér?

Í tengslum við opnun nýs vedur.is hafa vaknað spurningar um umfang verkefnisins, framkvæmd þess og kostnað. Eðlilegt er að endurnýjun eins fjölsóttasta upplýsingavefs landsins veki athygli.

Hér er farið yfir hvað fólst í vinnunni og hvers vegna hún snýst um heildstæða umbreytingu á tæknilegum innviðum sem nær langt út fyrir útlit nýrrar heimasíðu.

Í stuttu máli

  • Stafrænir innviðir, ekki bara ný heimasíða. Vefurinn sem fólk sér er aðeins efsta lagið. Undir honum liggja gagnagrunnar, gagnaflæði, kortavinnsla, vefþjónustur og rekstrarumhverfi sem byggð voru upp eða endurnýjuð í verkefninu.
  • Frá mælitæki að skjá. Veðurstofan fær gögn frá yfir 900 mælitækjum víðs vegar um landið og rekur yfir 100 vefþjónustur sem flytja gögn milli kerfa. Þar af eru yfir 50 fyrir veðurathuganir einar.
  • 65 þúsund notendur á sama tíma. Eftir stóran jarðskjálfta reyndu svo margir að nálgast upplýsingar á sama tíma að gamli vefurinn lét undan álaginu. Nýi vefurinn hefur verið álagsprófaður og afkastageta hans eykst sjálfkrafa þegar aðsókn vex.
  • Stærsti hluti kostnaðarins fór í kerfin að baki vefnum. Frá því að undirbúningur hófst árið 2021 nemur útlagður kostnaður um 446 milljónum króna. Þar vegur þyngst vinna við gögn, tengingar milli kerfa, netöryggi og búnað sem tekur við ef bilun verður. Verkefnið er því fjárfesting í stafrænum innviðum sem nýtast áfram, ekki einskiptiskostnaður við heimasíðu.
  • Með opnun nýs vedur.is er fyrsta áfanganum náð. Við byrjuðum á því sem flestir sækja á vefinn, meðal annars veðurspám, viðvörunum og upplýsingum um jarðskjálfta. Nú byggjum við á sama grunni og vinnum að nýjum vefsvæðum fyrir sjóveður, flugveður, eldstöðvar og vatnafar. Þar til þau opna má nálgast upplýsingarnar á eldri vefnum.

Mikilvægur hluti af öryggisþjónustu

Veðurstofa Íslands er ein af fáum stofnunum í heiminum þar sem vöktun á allri helstu náttúruvá landsins og miðlun upplýsinga um hana fer fram á einum stað.

Uppbygging vefsins tekur mið af þessu víðtæka hlutverki. Þar þarf ekki einungis að miðla almennum veðurspám, sjóveðri og flugveðri, heldur einnig upplýsingum og viðvörunum vegna veðurs, jarðskjálfta, eldgosa, snjóflóða, skriðna og vatnsflóða.

Upplýsingatækniinnviðir Veðurstofunnar eru hluti af öryggisinnviðum landsins. Ef þeir bregðast gætu náttúruváreftirlit og flugveðurþjónusta orðið óvirk. Spár og viðvaranir myndu þá ekki berast viðbragðsaðilum, almannavörnum, sveitarfélögum og rekstraraðilum mikilvægra innviða. Gögn myndu heldur ekki berast þeim sem byggja eigin lausnir á opnum gögnum Veðurstofunnar.

Vedur.is er sá hluti þessara innviða sem snýr að almenningi. Miðlun í gegnum vefinn snýst um að réttar upplýsingar berist í tæka tíð til þeirra sem þurfa á þeim að halda og að skilaboðin séu skiljanleg svo hægt sé að bregðast við þeim.

Á vedur.is sækja almenningur, sjómenn, flugmenn, bændur, sveitarfélög, fjölmiðlar, viðbragðsaðilar og rekstraraðilar mikilvægra innviða upplýsingar sem þurfa að nýtast við ólíkar aðstæður. Tækniumhverfið að baki vefnum þarf að styðja við þessa fjölbreyttu miðlun og halda upplýsingunum aðgengilegum þótt aðsókn margfaldist á skömmum tíma.

Aðsóknin getur margfaldast á örskömmum tíma

Í óveðri er nauðsynlegt að skilja hvernig veðrið mun þróast, við hverju má búast næstu klukkustundir og hvar viðvaranir eru í gildi. Þegar stór jarðskjálfti finnst í byggð eða óveður gengur yfir leita margir á vedur.is á sama tíma. Eftir skjálfta vill fólk vita hvar hann varð og hversu stór hann var.

Vefurinn þarf því að ráða við skyndilega aukna aðsókn og koma nýjustu mælingum, spám og viðvörunum skýrt til skila.

  • 600 þúsund notendur og sex milljónir flettinga á dæmigerðu 30 daga tímabili.
  • 320 þúsund notendur á einum degi í óveðrinu í mars 2026.
  • 65 þúsund notendur reyndu á sama tíma að nálgast upplýsingar um stóran jarðskjálfta. Þá lét gamli vefurinn undan álaginu.

Langur vegur frá mælitæki að skjá

Að baki upplýsingunum eru mælingar, niðurstöður reiknilíkana og mat sérfræðinga. Til Veðurstofunnar streyma gögn frá yfir 900 mælitækjum víðs vegar um landið, meðal annars veðurstöðvum, úrkomumælum, vatnamælum, skjálftamælum, GPS-mælum, gasmælum við eldfjöll, sjávarborðsmælum og veðursjám.

Gögnunum þarf að safna, þau þarf að sannreyna og vinna úr þeim áður en þau verða að spám, viðvörunum og kortum. Vefurinn er fremsti hlekkurinn í þessari löngu keðju frá mælitæki að skjá notenda. Endurnýjun vedur.is, sem opnaði 17. nóvember, nær því ekki aðeins til kortanna og upplýsinganna á skjánum heldur líka til gagnaflæðis, vinnslu og rekstrarkerfa að baki þeim.

Jeppi við mælibúnað á þrífæti á snævi þöktu svæði í myrkri. Vinnuljós lýsa upp búnaðinn og snjóinn í kring.

Mörg mælitæki Veðurstofunnar eru hátt til fjalla og á afskekktum stöðum þar sem aðgengi getur verið erfitt. Viðhald og gagnaflutningar eru hluti af vinnunni við að koma mælingum alla leið á skjá notenda.

Um mælingar á afskekktum stöðum

Margar stöðvarnar standa á afskekktum stöðum, hátt til fjalla og á hálendinu, þar sem ekkert rafmagn er að hafa. Þar kemur orkan frá sólarsellum, vindrellum og rafgeymum. Starfsfólk Veðurstofunnar heimsækir mælistaðina reglulega til að yfirfara og kvarða búnaðinn, því stór hluti stöðvanna má aldrei detta út.

Sum svæði kalla á sérstaka vöktun. Í hlíðinni ofan Seyðisfjarðar eru til dæmis um 75 mælipunktar sem senda rauntímagögn eftir tíu ólíkum gagnastraumum til sólarhringsvaktar Veðurstofunnar. Á Svínafellsheiði er fylgst með hreyfingum jarðlaga vegna hættu á berghruni. Við þetta bætist mikið gagnamagn úr veðurlíkönum og frá gervitunglum.

Gögnunum þarf að safna, sannreyna og vinna úr þeim áður en þau verða að spám, viðvörunum og kortum. Vefurinn er síðasti hlekkurinn í þeirri keðju og þarf að standa undir öllu sem á undan kemur. Nýr vedur.is, sem opnaði 17. nóvember, er byggður upp með þessar þarfir í huga. Endurnýjunin nær frá kortunum og upplýsingunum á skjánum til gagnaflæðis, vinnslu og rekstrarkerfa að baki þeim.

Hlutverk Veðurstofunnar við miðlun upplýsinga um náttúruvá

Hlutverk Veðurstofu Íslands er að vakta veður, jarðskjálfta, eldgos, jökulhlaup, vatnsflóð og ofanflóð og gefa út spár og viðvaranir eftir því sem við á. Veðurstofan safnar, varðveitir og greinir gögn, stundar rannsóknir og miðlar upplýsingum sem nýtast samfélaginu í viðbrögðum við náttúruvá og áhrifum loftslagsbreytinga.

Í stefnu Veðurstofunnar fyrir árin 2025–2030 er framtíðarsýnin orðuð svo: „Við eflum öryggi og áfallaþol samfélagsins í ört breytilegum heimi.“ Eitt af leiðarljósum stefnunnar er að þjónustan taki mið af þörfum notenda og bjóði þeim hagnýtar lausnir.

Áreiðanleiki er eitt af gildum Veðurstofunnar. Upplýsingarnar á vedur.is geta ráðið því hvort fólk leggur af stað, hvernig það skipuleggur vinnu sína eða hvernig það bregst við hættu. Því þarf að vanda hvert skref, frá varðveislu og úrvinnslu gagna til rekstrar og öryggis vefsins.

myndin er tekin inn um glugga í myrkri og sýnir tvo karlmenn vakta fjölda skjáa, annar er í símanum og á skáunum sést eldgos.

Á sólarhringsvakt Veðurstofunnar er fylgst með veðri og náttúruvá allan sólarhringinn. Vedur.is er ein helsta leiðin til að koma spám, mælingum og viðvörunum til almennings.

Stafrænir innviðir, ekki bara ný heimasíða

Endurnýjun vedur.is nær frá viðmótinu sem notendur sjá til kerfanna sem taka við gögnum, vinna úr þeim og miðla þeim á vefinn. Um er að ræða uppbyggingu stafrænna innviða sem eiga að þjóna samfélaginu til langs tíma og miðla upplýsingum um veður, náttúruvá og umhverfi til almennings, fjölmiðla, atvinnulífs og viðbragðsaðila.

Vefur Veðurstofunnar er ólíkur flestum vefum. Hann er hluti af öryggisþjónustu og þarf alltaf að vera aðgengilegur, allan sólarhringinn, alla daga ársins. Það sem notendur sjá á vedur.is er aðeins fremsti hlekkurinn í langri og flókinni virðiskeðju gagna. Undir honum liggja nokkur lög sem hvert um sig þurfti að byggja upp eða endurnýja:

  • Gagnagrunnar og gagnaflæði. Gögn úr eldri kerfum voru hreinsuð og flutt í nýja gagnagrunna og sérstakt gagnaflæði sett upp fyrir vefinn.
  • Úrvinnsla. Kortakerfi sem er hýst hjá Veðurstofunni vinnur beint úr veðurlíkangögnum og útbýr þau fyrir gagnvirk kort.
  • Vefþjónustur. Veðurstofan rekur yfir 100 vefþjónustur sem flytja gögn á milli kerfa, þar af fleiri en 50 fyrir veðurathuganir einar. Þær leggja jafnframt grunn að því að aðrir geti nýtt gögnin.
  • Rekstrarumhverfi. Vefurinn er rekinn í skýjaumhverfi sem eykur afköst sjálfkrafa, með marglaga vörnum, vöktun og sjálfvirku útgáfuferli.
  • Vefsvæði og hönnunarkerfi. Sjálfstæð vefsvæði fyrir veður, viðvaranir, jarðskjálfta, snjóflóð, skriður og loftslagsatlas deila einu hönnunarkerfi.

Þessir innviðir nýtast víðar en á vedur.is. Á þeim verða byggð ný vefsvæði fyrir sjóveður, flugveður, eldstöðvar, vatnafar, rannsóknir, náttúruvárþjónustu og loftslagsþjónustu. Þeir leggja grunn að því að miðla viðvörunum í fleiri tæki og að gögnin sem Veðurstofan aflar nýtist í öðrum vefjum og öppum. Ný heimasíða ein og sér hefði ekki dugað til þess. Fjárfestingin í vefnum hefur jafnframt styrkt upplýsingatækniumhverfi Veðurstofunnar í heild, meðal annars rekstrarsamfellu og tvöföldun kerfisinnviða.

Skýringarmynd af stafrænum innviðum Veðurstofunnar. Efst eru notendur og vefsvæðin sem fólk sér. Undir þeim liggja rekstrarumhverfi, vefþjónustur, úrvinnsla, gagnagrunnar og gagnaflæði, og neðst gagnaöflun. Gögnin berast einnig til annarra vefja og appa og í gegnum Meteoalarm.

Einfölduð mynd af stafrænum innviðum Veðurstofunnar. Vefurinn sem fólk sér er efsta lagið. Undir honum liggja innviðir sem taka við gögnum, vinna úr þeim og miðla þeim.

Hvers vegna þurfti að endurnýja grunnkerfin?

Endurnýjunin var nauðsynleg til að bregðast við veikleikum í eldri kerfum og breyttum þörfum notenda.

Gamli vefurinn var kominn til ára sinna en hann hafði þjónað landsmönnum í nær tvo áratugi. Vefurinn byggði á vefumsjónarkerfinu Eplica en í desember 2023 var tilkynnt að nýsmíði og þróun kerfisins hefði verið hætt og viðskiptavinum ráðlagt að færa vefi sína í nýtt tækniumhverfi. Þeim var jafnframt ráðlagt að ráðast ekki í umfangsmiklar breytingar á vefjum sínum þar sem sú fjárfesting yrði skammlíf.

Á þessum tíma hafði notkunin líka breyst. Fólk sækir upplýsingar í símann, vill skoða gagnvirk kort og finna spár og viðvaranir fyrir tiltekna staði.

Þróun nýja vefsins hefur staðið yfir í nokkur ár. Á þeim tíma hafa snjallsímanotkun, kröfur um stafrænt aðgengi og umfang upplýsinganna sem Veðurstofan miðlar aukist. Verkefnið hefur því þróast samhliða breyttum þörfum notenda og nýjum tæknilegum kröfum.

Veikleikar komu fram þegar mest reyndi á

Endurteknar truflanir við náttúruváratburði höfðu sýnt að styrkja þyrfti tæknilega innviði miðlunarinnar. Þegar eldgos hófust og uppfærslur voru settar inn bilaði vefurinn ítrekað, á sama tíma og starfsfólk vann að viðbrögðum við gosinu.

„Við miðlun upplýsinga um eldsumbrot á Reykjanesi komu fram verulegir veikleikar í upplýsingakerfum Veðurstofunnar. Það reyndi bæði á aðgengi að fjölbreyttum gögnum og getu kerfanna til að vinna með stór gagnasöfn og miðla upplýsingum með áreiðanlegum hætti. Endurteknar truflanir ollu töfum í miðlun og juku álag sem erfitt var að mæta.“

— Ingvar Kristinsson, framkvæmdastjóri athugana- og upplýsingatæknisviðs Veðurstofunnar

Horft yfir Grindavíkurhöfn og byggðina að glóandi gossprungu. Rauðlitur mökkur rís yfir sprungunni og bjarminn frá gosinu speglast í höfninni.

Eldgos við Grindavík. Þegar eldgos hefst getur aðsókn að vedur.is margfaldast á örfáum mínútum. Þá þarf vefurinn að ráða við álagið svo fólk geti fylgst með framvindu gossins og nálgast nýjasta hættumat Veðurstofunnar. Ljósmynd: Ragnar Axelsson/RAX.

Þörfin hafði líka verið staðfest utan Veðurstofunnar. Eftir fárviðrið í desember 2019 réðust stjórnvöld í átak til að styrkja mikilvæga innviði. Veðurstofan fékk þá meðal annars fjármagn til að þróa vefumhverfi sem mætti kröfum um nútímalega framsetningu og tryggði uppitíma. Í skýrslu stýrihóps þjóðaröryggisráðs frá desember 2022 er jafnframt bent á að tryggja þurfi að mæli- og upplýsingatækni vegna vöktunar á náttúruvá standist tækniþróun og kröfur hvers tíma. Í skýrslu stjórnvalda um stöðumat og áskoranir vegna náttúruvár er einnig fjallað um nauðsyn öflugra tækniinnviða og mikilvægi þess að auka aðgengi að hættumatskortum og öðrum upplýsingum, til dæmis í snjalltækjum í gegnum kortasjár og vefsvæði.

Sérfræðingar voru fengnir til að greina stöðuna og leggja til úrbætur. Niðurstaðan var að styrkja þyrfti grunnkerfin, meðal annars gagnageymslur, gagnahögun, vélbúnað og netkerfi. Samhliða þyrfti að þróa vefþjónustur, gagnagáttir og vefsjár til að bæta miðlun gagna.

Frá upphafi lá fyrir að umfangið væri óljóst. Gamli vefurinn hafði að geyma um 3.000 undirsíður með birtingu gagna frá hundruðum ólíkra gagnastrauma, síður sem púslað hafði verið saman í tvo áratugi. Því var boðið út þróunarsamstarf, í samráði við Ríkiskaup, með það fyrir augum að fá samstarfsaðila með þekkingu og getu til að greina og vinna svo viðamikið verkefni. Í byrjun árs 2023 var ljóst að endurnýja þyrfti meira af innviðunum að baki vefnum en fyrstu áætlanir gerðu ráð fyrir.

Forsíða gamla vedur.is til vinstri og forsíða nýs vedur.is til hægri

Gamli vefurinn þjónaði landsmönnum í nær tvo áratugi og er enn aðgengilegur á eldri.vedur.is. Til hægri er forsíða nýs vedur.is 25. nóvember 2026, þegar skriðuviðvörun og viðvaranir vegna hvassviðris voru í gildi.

Kröfur sem ganga lengra en á hefðbundnum vef

Vefurinn gegnir mikilvægu samfélagshlutverki þegar mest á reynir. Þegar eldgos hefst, stór jarðskjálfti finnst í byggð eða óveður er yfirvofandi getur aðsókn margfaldast á örfáum mínútum. Þá þarf vefurinn að halda áfram að miðla spám, mælingum og viðvörunum.

Við þróunina var því lögð sérstök áhersla á rekstraröryggi, álagsþol og öryggi upplýsinga og rekstrarumhverfis. Jafnframt þurfti að uppfylla kröfur um stafrænt aðgengi og leggja grunn að áframhaldandi þróun. Þessar kröfur hafa veruleg áhrif á umfang verkefnisins og ganga lengra en almennt tíðkast við gerð hefðbundinna upplýsingavefa.

Gagnagrunnar og tengingar að baki upplýsingunum

Að baki spám, mælingum og viðvörunum eru stöðugir gagnastraumar frá mælitækjum, reiknilíkönum og sérfræðingum. Gögnin koma úr ólíkum kerfum, ná yfir mismunandi svæði og tímabil og uppfærast mishratt. Hver hluti vefsins kallar á sína gagnastrauma og sína framsetningu. Í verkefninu voru gögn úr eldri kerfum hreinsuð og flutt í nýja gagnagrunna, sett upp sérstakt gagnaflæði fyrir vefinn og kerfi Veðurstofunnar tengd nýja vefumhverfinu.

Nánar um gögnin og tengingarnar í bakendanum

  • Gögn hreinsuð og flutt. Gögn úr eldri kerfum voru yfirfarin og flutt úr DB2 yfir í PostgreSQL-gagnagrunna svo hægt væri að nýta þau í nýju vefumhverfi. Gögn um eldfjöll voru til dæmis tekin saman úr fleiri kerfum í einn grunn.
  • Sérstakt gagnaflæði fyrir vefinn. Veðurstofan heldur utan um mikið magn gagna, en á vefnum birtist aðeins lítill hluti þeirra. Þau gögn sem birtast á vefnum eru því færð í sérstakan gagnagrunn þar sem gagnalíkanið er lagað að þörfum vefsins. Fyrirspurnir verða þannig léttari því ekki þarf að leita í umfangsmeiri gagnasöfnum Veðurstofunnar í hvert sinn sem notandi sækir upplýsingar.
  • Kerfi Veðurstofunnar tengd vefnum. Settar voru upp tengingar og vefþjónustur sem flytja gögnin og gera vefnum kleift að sækja þau til birtingar. Jafnframt var sett upp prófunarumhverfi hjá Veðurstofunni svo prófa megi breytingar áður en þær fara í rekstur.
  • Einfaldari skráning. Unnið er að því að einfalda skráningarkerfi og gagnagrunna, meðal annars með nýjum skráningarformum fyrir snjóflóð og skriður.
  • Auðveldara fyrir aðra að nýta gögnin. Nýtt vefþjónustuumhverfi leggur grunn að því að gögnin sem Veðurstofan aflar nýtist við þróun annarra vefja og appa. Vinnan við gagnasöfn, úrvinnslu og miðlun gagnast því fleirum en notendum vedur.is.

Kortavinnsla hjá Veðurstofunni

Kortin eru einn sýnilegasti hluti nýja vefsins og jafnframt einn umfangsmesti hluti innviðanna að baki honum. Spágögn úr veðurlíkönum eru unnin í úrvinnslukerfi sem Veðurstofan hýsir sjálf og send í tæki notenda svo kortin bregðist hratt við, líka þegar álagið er mikið.

Veðurþáttakort á nýjum vedur.is með vindi, hita og úrkomu yfir Íslandi og fána sem sýnir spágildi á völdum stað

Veðurþáttakortið 25. nóvember 2026 kl. 19. Vindur, hiti og úrkoma eru sýnd á sama korti. Fáninn sýnir spágildi fyrir valinn stað og tímastikan neðst nær viku fram í tímann.

Hvernig virkar kortakerfið?

Veðurstofan nýtir hugbúnað frá svissneska fyrirtækinu MapTiler til að vinna úr kortagögnum og birta þau á gagnvirkum kortum. MapTiler er hugbúnaður sem þarf að setja upp, aðlaga og tengja við gögn og kerfi Veðurstofunnar. Innleiðingin felur því í sér vinnu við gagnaflæði, úrvinnslu og samþættingu við viðmót vefsins, auk þess að tryggja áreiðanlegan rekstur og reglulega uppfærslu kortagagnanna.

  • Úrvinnslan er hýst hjá Veðurstofunni. Kerfið vinnur meðal annars beint úr veðurlíkangögnum frá ofurtölvunni á Bústaðavegi, sem er í eigu veðurstofa Íslands, Danmerkur, Írlands og Hollands.
  • Sjö daga spá úr tveimur líkönum. Spáin byggir á tveimur veðurlíkönum sem saman ná yfir spátímabilið. Annað hefur forgang þar sem það nær og hitt tekur við eftir það, svo notandinn sér eina samfellda spá. Úrkoma er sýnd sem uppsöfnuð úrkoma yfir eina, þrjár eða sex klukkustundir eftir því hve langt fram er horft.
  • Gögnin fara alla leið í tækið. Spágögn eru unnin í kortaflísar sem vafrinn sækir eftir þörfum. Gildin eru kóðuð í litarásir myndanna. Þegar gögnin hafa borist í tækið má færa fánann og sjá spágildi breytast án nýrrar fyrirspurnar til þjónustunnar við hverja færslu.
  • Teiknað í skjákorti tækisins. Kortin eru teiknuð með WebGL í skjákorti (GPU) tækisins en ekki send sem tilbúnar myndir. Því má þysja, færa kortið og skipta um veðurþátt án þess að síðan hlaðist upp á nýtt. Vindurinn birtist sem agnir sem streyma yfir landið og jarðskjálftar eru teiknaðir og síaðir í skjákortinu, svo kortið bregðst strax við þótt skjálftarnir séu margir.
  • Aðeins sótt það sem sést. Spákortið sækir aðeins stöðvar á svæðinu sem sést og fjöldinn ræðst af aðdrætti. Öll tímalínan fyrir svæðið kemur í einni sendingu svo hægt er að renna fram og aftur í tíma án þess að bíða eftir gögnum.
  • Framsetningin aðlagast notkuninni. Litum og framsetningu spágagna er stýrt í viðmótinu. Bakgrunnskortin byggja á vektorgögnum sem halda skýrleika við aðdrátt. Tákn og staðarheiti aðlagast því hversu langt er þysjað inn og kortin fylgja ljósu eða dökku útliti eftir stillingum notandans.
  • Úrvinnslukerfið er tvöfalt. Tvær vélar geta hvor um sig sinnt allri þjónustunni. Það dregur úr hættu á að bilun í einni vél stöðvi úrvinnslu og miðlun kortagagnanna.

Rekstur sem þarf að standast álagstoppa

Vefurinn fær milljónir heimsókna á ári og álagið er ójafnt. Álagsþol, rekstraröryggi og vernd upplýsinga eru því lykilþættir í uppbyggingunni. Forgangsröðunin er skýr: betra er að nýr jarðskjálfti birtist örlítið síðar en að vefurinn svari ekki.

  • Prófaður fyrir mikið álag. Álagsprófin líktu eftir daglegri notkun og skyndilegum álagstoppum. Niðurstöðurnar voru nýttar til að finna flöskuhálsa, stilla kerfin og bæta kóðann.
  • Varaleið fyrir gögnin. Öll kerfi sem streyma gögnum inn á vefinn hafa verið tvöfölduð svo varaleið sé alltaf til staðar. Rofni samband milli Veðurstofunnar og skýjaumhverfisins getur vefurinn áfram birt síðustu gögn sem borist hafa, þótt þau uppfærist ekki á meðan. Jarðskjálftavefurinn sýnir þá til dæmis síðustu réttu gögn í stað tómrar síðu.
  • Óháð öryggisúttekt. Fyrir opnun fór vefurinn í óháða öryggisúttekt og árásarprófanir.

Nánar um rekstur og öryggi

  • Afkastageta sem fylgir álaginu. Vefurinn er rekinn í skýjaumhverfi hjá Microsoft Azure þar sem afköst aukast sjálfkrafa þegar aðsókn vex. Það sparar jafnframt kaup og viðhald á eigin vélbúnaði og lögð var áhersla á að halda rekstrarkostnaði í lágmarki án þess að slaka á kröfum um öryggi.
  • Kubernetes og sjálfstæðar einingar. Undirliggjandi kerfi byggir á Kubernetes og skiptist í tugi sjálfstæðra eininga sem sjá sjálfkrafa um uppfærslur, endurnýjun öryggisskilríkja og umferðarstýringu. Auka má afköst einstakra vefhluta sérstaklega, til dæmis jarðskjálftavefsins, til að draga úr áhrifum á aðra þjónustu.
  • Skyndiminni í nokkrum lögum. Síður og svör eru geymd tímabundið í vafranum, á efnisdreifineti og í sameiginlegu minni sem allir vefþjónar deila. Síður eru forsmíðaðar og endurnýjaðar í bakgrunni. Aðeins einn gámur sér um að endurnýja efni hverju sinni á meðan hinir birta það, svo notendur fái ekki misnýjar upplýsingar. Þegar margir sækja sömu upplýsingarnar þarf því ekki að vinna þær að nýju fyrir hvern notanda. Álagsprófin sýndu að sameiginlega minnið varð flöskuháls við að lesa heilar síður, svo þær eru nú geymdar þjappaðar.
  • Sjálfvirk vöktun. Fylgst er með svörun og villum í rekstri. Kerfið skráir hversu langan tíma hver fyrirspurn tekur og hvort villur komi upp. Úr þeim upplýsingum er unnin yfirsýn í rauntíma svo hægt sé að greina tafir og bregðast við vandamálum.
  • Öryggi í útgáfuferlinu. Sjálfvirk öryggisskönnun kóða og eftirlit með hugbúnaðarpökkum eru hluti af útgáfuferlinu. Breytingar fara í gegnum þróunar- og prófunarumhverfi áður en þær eru teknar í notkun.
  • Marglaga varnir. Aðgangur að rekstrarumhverfinu er takmarkaður og umferð er síuð og vöktuð áður en hún nær inn í kerfið.

Endurskipulagning efnis og bætt aðgengi

Samhliða tæknivinnunni er unnið að því að yfirfara og endurskipuleggja um 3.000 síður af gamla vefnum svo auðveldara verði að finna efnið og halda því við. Efnið er þróað áfram og birt á nýja vefnum í áföngum.

Einnig hefur verið unnið að aðgengi fyrir fólk með ólíkar þarfir. Vefurinn styður skjálesara og lyklaborð og með hnappnum „Hlusta“ má fá texta lesinn upp. Reglulegar aðgengisprófanir hjálpa til við að finna og lagfæra atriði sem geta torveldað notkun.

  • Íhlutir byggðir fyrir aðgengi. Íhlutir vefsins eru meðal annars með sýnilegan fókus og falinn texta fyrir skjálesara.
  • Sjálfvirkar aðgengisreglur í kóðanum. Reglurnar grípa algeng mistök áður en þau fara í loftið.
  • Upplestur þar sem hann nýtist. Hægt er að láta lesa upp forsíðu, fréttir, efnissíður, spár og athuganir. Hver síða skilgreinir hvaða hluti hennar er lesinn svo valmyndir og annað aukaefni sé ekki lesið með.

Hvað felst í kostnaðinum?

Frá því að undirbúningur verkefnisins hófst árið 2021 hefur útlagður kostnaður við það numið um 446 milljónum króna. Stærsti hluti kostnaðarins fór í bakenda kerfisins, það er gögn, vefþjónustur og samþættingar, innviði, netöryggi og rekstrarsamfellu.

Samið var við Origo um þróun vefsins að undangengnu útboði og sá Metall Design Studio um hönnun í samstarfi við Origo.

Umfang verkefnisins nær til þeirrar vinnu við grunnkerfi, gögn, kort, öryggi og rekstur sem hér hefur verið lýst. Verkefni af þessu tagi felur einnig í sér verkefnastýringu, þarfagreiningu, notendarannsóknir, aðgengisúttekt og undirbúning rekstrar. Sérfræðingar Veðurstofunnar hafa jafnframt lagt verkefninu til þekkingu á veðri, náttúruvá, gögnum og þjónustuferlum sem þarf til að upplýsingarnar skili sér rétt og nýtist við ólíkar aðstæður.

Verkefnið er því fjárfesting í stafrænum innviðum sem nýtast áfram við uppbyggingu nýrrar þjónustu, ekki einskiptiskostnaður við heimasíðu.

Grunnur að áframhaldandi þróun

Þar sem byggðir voru upp innviðir en ekki eingöngu heimasíða er hægt að halda áfram að byggja ofan á þá. Við opnun var þeim hlutum sem flestir nota forgangsraðað, meðal annars veðurspám, viðvörunum, jarðskjálftagögnum, tilkynningum sólarhringsvaktar og fréttum. Nýju innviðirnir nýtast við áframhaldandi uppbyggingu:

  • Sjóveður, flugveður, eldstöðvar, vatnafar, rannsóknir, náttúruvárþjónusta og loftslagsþjónusta. Ný vefsvæði eru í vinnslu í samstarfi við fagfólk sem þekkir gögnin og þarfir notenda. Á meðan eru upplýsingarnar áfram aðgengilegar á eldri.vedur.is. Einnig stendur til að birta fleiri veðurþáttaþekjur, upplýsingar úr veðursjám og gervitunglagögn.
  • Viðvaranir í fleiri tæki. Viðvaranir Veðurstofunnar berast nú þegar í gegnum evrópska gagnagrunninn Meteoalarm, meðal annars í snjallsíma ferðamanna. Stefnt er að því að miðla þeim eftir alþjóðlegum stöðlum svo þær geti borist víðar, meðal annars í snjalltæki og leiðsögukerfi bíla. Jafnframt er unnið að lausnum fyrir veður- og náttúruvárvakt sem tengja upplýsingar við einstök svæði og staði. Þær auka möguleika á að senda viðvaranir beint til notenda eftir staðsetningu þeirra.
  • Betra aðgengi að rannsóknum og hættumati. Nýja tækniumhverfið auðveldar að miðla niðurstöðum rannsókna og hættumati, til dæmis til sveitarfélaga vegna skipulags byggðar, uppbyggingar innviða og aðlögunar að loftslagsbreytingum.

Ábendingar notenda móta næstu skref

Frá opnun hafa borist fjölmargar ábendingar. Sumir notendur sakna yfirlitssýnar og leiða sem þeir þekkja af gamla vefnum, aðrir benda á atriði sem mætti gera skýrari eða aðgengilegri. Vind-, hita- og úrkomukortin sem áður sáust saman á forsíðunni eru til dæmis nú undir Veðurþáttakortum. Þar má skoða gögnin saman á gagnvirku korti, en frá forsíðunni þarf fleiri skref að sumum þeirra.

Ábendingarnar nýtast við að forgangsraða úrbótum og áframhaldandi þróun. Á síðunni „Spurt og svarað“ eru leiðbeiningar í texta, myndum og myndböndum. Ábendingar um vefinn má senda á nyrvefur@vedur.is.

— Í stuttu máli

Mikilvægur hluti af öryggisþjónustu

Aðsóknin getur margfaldast á örskömmum tíma

Langur vegur frá mælitæki að skjá

Hlutverk Veðurstofunnar við miðlun upplýsinga um náttúruvá

Stafrænir innviðir, ekki bara ný heimasíða

Hvers vegna þurfti að endurnýja grunnkerfin?

Veikleikar komu fram þegar mest reyndi á

Kröfur sem ganga lengra en á hefðbundnum vef

Gagnagrunnar og tengingar að baki upplýsingunum

Rekstur sem þarf að standast álagstoppa

Endurskipulagning efnis og bætt aðgengi

Hvað felst í kostnaðinum?

Grunnur að áframhaldandi þróun

Ábendingar notenda móta næstu skref