Fjórir jarðskjálftamælar settir upp við Grjótárvatn

05.11.2026

Fjórir jarðskjálftamælar settir upp við Grjótárvatn

Veðurstofa Íslands hefur sett upp fjóra jarðskjálftamæla við Grjótárvatn til skamms tíma. Með mælingunum er kannað hvort þörf sé á að þétta núverandi mælanet á svæðinu. Verkefnið nýtist einnig til að þróa verklag við uppsetningu mæla þar sem aukinnar skjálftavirkni verður vart.

Maður á rauðum vélbáti á Grjótárvatni. Snævi þakin fjöll í bakgrunni.

Baldur Bergsson á Grjótárvatni 28. október 2026. Siglt var með mælitækin yfir vatnið til að setja upp jarðskjálftamælistöð. Ljósmynd: Jón Bjarni Friðriksson.

Mælarnir voru settir upp í lok október og verða teknir niður fljótlega. Þrír þeirra senda gögn í rauntíma til Veðurstofunnar. Sá fjórði er staðsettur ofan við Grjótárvatn, beint yfir svæðinu þar sem skjálftavirknin mælist. Þar er ekki símasamband og verða gögnin því sótt í mælinn að mælingum loknum.

Með því að bera gögn úr tímabundnu mælunum saman við gögn úr fasta mælanetinu má meta hvort þörf sé á að þétta netið á svæðinu.

starfsmannamynd

„Það skiptir máli að kanna hversu vel mælanetið okkar nær utan um skjálftavirknina. Með tímabundnum mælum getum við metið hvar viðbótarmælingar gera mest gagn. Um leið öðlumst við reynslu sem nýtist þegar við þurfum að bregðast við aukinni virkni með því að setja upp fleiri mæla,“ segir Kristín Jónsdóttir, deildarstjóri jarðskjálfta og jarðhniks hjá Veðurstofu Íslands.

Einföld uppsetning gefur gagnlegar mælingar

Uppsetning tímabundnu mælanna er einföld. Þeim var komið fyrir á klöpp og hlaðið grjóti í kringum þá, þar sem ekki var hægt að grafa þá í jörðu. Tveir eru nálægt vegi og einn nálægt á. Umhverfið veldur nokkru suði í gögnunum, en þrátt fyrir það má greina bylgjur frá jarðskjálftum.

Mælibúnaður í málmkassa og svörtu hylki, umkringdu grjóti. Skófla liggur í forgrunni og á liðast um sléttlendið í átt að vatninu í sólsetri.

Jarðskjálftamælistöð við Grjótárvatn 28. október 2026. Horft til suðvesturs yfir Grjótá, sem rennur úr Háleiksvatni í Grjótárvatn, og sólina setjast bak við Rauðhálsa. Ljósmynd: Jón Bjarni Friðriksson.

Mynd af ljóshærðri konu með vöktunarskjái fyrir aftan sig

„Við erum sérstaklega spennt að skoða gögnin úr mælinum sem er beint yfir skjálftavirkninni, en hann er utan símasambands. Mælarnir verða teknir niður fljótlega og þá tekur við úrvinnsla gagnanna,“ segir Sigríður Kristjánsdóttir, sérfræðingur í jarðvárvöktun hjá Veðurstofu Íslands, sem hélt utan um verkefnið og vann að uppsetningu mælanna.

Tveir starfsmenn vinna við mælibúnað í myrkri við ljós frá höfuðljósum og vinnuljósum. Opnar tækjatöskur og snúrur liggja á mosavöxnu undirlaginu.

Unnið að uppsetningu jarðskjálftamæla við Grjótárvatn í lok október. Verkefnið nýtist meðal annars til að þróa verklag við uppsetningu viðbótarmæla þar sem aukinnar skjálftavirkni verður vart. Mynd: Sigríður Kristjánsdóttir