17.04.2026
Gervihnattamælingar veita nýja innsýn í eðli jökulhlaupa
Nýjar mælingar á jökulhlaupunum frá Grímsvötnum 2021 og 2022 sýna hvernig vatn breiddist út undir jöklinum og lyfti honum á stóru svæði. Vatnið safnaðist tímabundið í víðáttumikil lón við jökulbotninn áður en það rann undan jöklinum. Niðurstöðurnar varpa nýju ljósi á hvernig hlaupin þróast.
Þetta kemur fram í rannsókn á jökulhlaupunum frá Grímsvötnum árin 2021 og 2022. Vísindamenn nýttu gervihnattamælingar, rennslismælingar í Gígjukvísl og mælingar á yfirborði Vatnajökuls til að fylgjast með framrás vatnsins undir jöklinum. Niðurstöðurnar birtust í apríl 2026 í vísindatímaritinu Nature Communications.
Vatnið breiðist út og lyftir jöklinum
Mælingarnar sýna að hlaupvatnið berst í upphafi niður eftir jökulbotninum sem nokkurra kílómetra breiður flóðfaldur. Vatnið lyftir jöklinum um einn metra á stóru svæði.
Þegar jökullinn lyftist frá botninum minnkar viðnámið sem heldur aftur af skriði hans og hann færist hraðar fram. Í hlaupinu 2021 mældist um fimmföld aukning í skriðhraða á GPS-stöð um 17 km sunnan við Grímsvötn.

Hreyfing GPS-stöðvar um 17 km sunnan við Grímsvötn í jökulhlaupinu 2021. Rauði ferillinn sýnir hæðarbreytingu og sá blái láréttan hraða. Fyrstu merki um leka úr Grímsvötnum greindust 15. nóvember. Flóðbylgjan náði að stöðinni 24. nóvember og að jökulsporðinum 27. nóvember. Hámarksrennsli úr Grímsvötnum var nærri 3.600 m³/s og náðist að kvöldi 4. desember. Ljósblái borðinn sýnir láréttan hraða fyrir hlaupið.
Víðáttumikil lón myndast undir jöklinum
Í hlaupunum 2021 og 2022 safnaðist vatn fyrir neðan Grímsvötn þar sem þróun farvegarins hélt ekki í við rennslið. Þaðan barst flóðbylgja eftir jökulbotninum að jökuljaðrinum á fjórum til sex dögum. Á leiðinni mynduðust víðáttumikil lón undir Skeiðarárjökli sem tæmdust síðan undir lok hlaupanna.
Mælingarnar gerðu vísindamönnum kleift að meta hversu mikið vatn safnaðist fyrir undir jöklinum. Í hlaupinu 2021 rann nærri einn rúmkílómetri vatns úr Grímsvötnum. Þegar mest var nam vatnssöfnun undir Skeiðarárjökli um fjórðungi þess rúmmáls.
Þessi framrás flóðbylgjunnar er að sumu leyti sambærileg við það sem sést í svokölluðum hraðvaxandi jökulhlaupum úr Skaftárkötlum í vestanverðum Vatnajökli. Þau hafa einnig verið rannsökuð með gervihnattamælingum en vaxa mun hraðar en flest Grímsvatnahlaup.

Þróun jökulhlaups frá Grímsvötnum, byggð á mælingum á hlaupunum 2021 og 2022. Myndir a–f sýna hvernig vatn breiðist út og safnast í lón undir Skeiðarárjökli áður en þau tæmast. Innfellda línuritið sýnir vatnssöfnunina og tímasetningu hvers skeiðs á um þriggja vikna tímabili. Nánari lýsing á skeiðunum er hér fyrir neðan.
a) Hlaup hefst. Vatn byrjar að leka undir ísstíflu Grímsvatna og rennslisgöng taka að myndast. Neðar á leiðinni heldur þróun farvegarins ekki í við rennslið og vatn safnast fyrir.
b–c) Flóðbylgja berst niður eftir jöklinum. Frá svæði II, þar sem vatn hefur safnast fyrir, berst flóðbylgja eftir jökulbotninum að jökuljaðrinum á fjórum til sex dögum. Á yfirborði greinist framrás hennar sem lyfting jökulsins og aukinn skriðhraði.
d) Lónin stækka. Hár vatnsþrýstingur heldur áfram að lyfta jöklinum. Lónin vaxa og ná yfir stóran hluta jökulbotnsins. Rennslisgöng taka að myndast við jökuljaðarinn.
e) Jökullinn tekur að síga. Þegar dregur úr rennsli frá Grímsvötnum og vatn hættir að safnast fyrir fellur þrýstingurinn undir jöklinum. Lyftingin stöðvast og verulega hægir á skriði hans. Jökullinn tekur síðan að síga, fyrst ofarlega í hlaupfarveginum og svo neðar.
f) Lónin tæmast. Eftir verða stakar, samtengdar tjarnir sem hverfa að lokum. Rennsli í Gígjukvísl kemst aftur í eðlilegt horf.
Kenning byggð á íslenskum mælingum
Jökulhlaup frá Grímsvötnum hafa verið rannsökuð af vísindamönnum í hartnær öld. Fyrsta vísindakenningin um eðli þeirra, sem John Nye setti fram árið 1976, byggðist á mælingum og athugunum Íslendinga á Skeiðarárhlaupum. Þar komu meðal annarra við sögu Sigurjón Rist vatnamælingamaður, Sigurður Þórarinsson jarðfræðingur og Helgi Björnsson jöklafræðingur.
Kenningin gerði ráð fyrir að vatnið rynni eftir göngum undir jöklinum sem stækkuðu smám saman þegar hlaupvatnið bræddi ísinn í veggjum þeirra. Þessu má líkja við að skrúfa frá garðslöngu, nema að slangan sjálf víkki eftir því sem meira vatn rennur um hana.
Lögun útfalla við jökuljaðarinn og vöxtur rennslisins studdu þessa hugmynd. Jafna kenningarinnar um vöxt rennslisins féll jafnframt vel að mælingum Sigurjóns Rist í Skeiðarárhlaupinu í mars 1972.
Nýju mælingarnar sýna hins vegar að rennsli um göng skýrir ekki eitt og sér alla þróun hlaupanna. Vatnið getur einnig breiðst út eftir jökulbotninum og safnast tímabundið í víðáttumikil lón. Rennsli um göng og útbreitt rennsli undir jöklinum geta þannig skipst á í sama hlaupi.
Gervihnettir nema hreyfingar á yfirborðinu
Lykilgögn í rannsókninni eru radarmyndir frá ICEYE-gervihnöttum. Með svokallaðri bylgjuvíxlgreiningu er hægt að mæla örlitlar hreyfingar á yfirborði jökulsins milli mælinga. Þessar hreyfingar gefa vísbendingar um framrás og söfnun vatns undir ísnum.
Sambærilegar mælingar eru meðal annars notaðar til að vakta eldfjöll, jarðskorpuhreyfingar og skriðusvæði.
Að rannsókninni unnu vísindamenn við Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands, Veðurstofu Íslands, Náttúrufræðistofnun, ENVEO IT GmbH í Austurríki, ICEYE Oy í Finnlandi og Háskólann í Toulouse í Frakklandi.
Vatnið breiðist út og lyftir jöklinum
Víðáttumikil lón myndast undir jöklinum
Kenning byggð á íslenskum mælingum
Gervihnettir nema hreyfingar á yfirborðinu