24.09.2026
Nýjar vefsíður fyrir skriðuviðvaranir komnar í loftið
Viðvaranir, vikulegt yfirlit um skriðuhættu og fréttir frá skriðuvakt nú aðgengileg á einum stað
Veðurstofan hefur opnað nýjar skriðusíður þar sem notendur geta nálgast viðvaranir um skriðuhættu, vikulegt yfirlit og fréttir frá skriðuvakt. Síðurnar auðvelda almenningi, fagaðilum og fjölmiðlum að fylgjast með aðstæðum og eru hluti af áframhaldandi endurnýjun á vef Veðurstofunnar.
Á nýju síðunum má finna:
- Litakóðaðar skriðuviðvaranir, settar fram á sambærilegan hátt og veðurviðvaranir.
- Kort af landinu sem skiptist í 15 skriðusvæði.
- Vikulegt yfirlit yfir veðuraðstæður á landinu öllu með tilliti til skriðuhættu.
- Upplýsingar um ný skriðuföll og þróun skriðuhættu.
- Fréttir af skriðuvöktun, vettvangsferðum og mælitækjum.
Nánari upplýsingar um staðbundna hættu
Skriðuhætta getur verið staðbundin og aðstæður ólíkar innan sama viðvörunarsvæðis. Fréttir og tilkynningar frá skriðuvakt eru því mikilvæg viðbót við viðvaranirnar og vikulega yfirlitið. Þar má nálgast nánari upplýsingar um aðstæður á einstökum svæðum og fylgjast með þróun atburða.
„Við gefum út viðvaranir fyrir stór svæði, en eins og við vitum þá hlýðir náttúran ekki landamærum og skriðuhætta getur verið mjög staðbundin innan sama svæðis,“ segir Jón Kristinn Helgason, fagstjóri skriðufalla á Veðurstofu Íslands. „Við munum reyna að miðla slíkum upplýsingum með ítarlegum tilkynningum frá vaktinni,“ segir Jón Kristinn.
Litakóðaðar viðvaranir líkt og fyrir veður
Viðvaranir um skriðuhættu eru gefnar út þegar veður, einkum úrkoma og/eða leysingar, eða aðrar aðstæður auka líkur á skriðuföllum á tilteknum svæðum. Skriðuviðvaranir Veðurstofunnar fylgja alþjóðlega staðlinum CAP (Common Alerting Protocol), líkt og veðurviðvaranir sem notendur þekkja. Viðvaranirnar eru litakóðaðar og endurspegla möguleg samfélagsleg áhrif út frá tilteknum aðstæðum. Í einstökum tilvikum eru viðvaranir einnig gefnar út ef líkur eru á að jarðskjálftavirkni valdi skriðuhættu.
„Viðvaranir um skriðuhættu byggja á bestu tiltæku gögnum og mati á veðri, svo sem úrkomu, leysingum og öðrum aðstæðum sem auka líkur á skriðuföllum, en auðvitað er óvissa alltaf hluti af slíku mati,“ segir Jón Kristinn.

Skjáskot af skriðuviðvörunum á vef Veðurstofunnar. Kort sýnir gul viðvörunarsvæði á Suðurlandi, Suðausturlandi, sunnanverðum Austfjörðum og miðhálendinu. Við hlið kortsins eru upplýsingar um hættu vegna úrkomu, gildistíma og ráðleggingar.

Á skriðusíðunum birtast einnig fréttir frá skriðuvakt Veðurstofunnar. Þar birtast meðal annars nánari upplýsingar um veðuraðstæður, skriðuhættu og þróun atburða á tilteknu viðvörunarsvæði, til viðbótar við CAP-viðvaranir eða vikulegt mat. Einnig um vettvangsferðir starfsmanna eða uppsetningu og flutning mælitækja.
Mikilvæg viðbót við þjónustu Veðurstofunnar
Veðurstofan hefur rekið skriðuvakt frá árinu 2010 og eru nýju síðurnar mikilvæg viðbót til að bæta þjónustuna á því sviði. „Við viljum miðla upplýsingum um náttúruvá á þann hátt að það gagnist fólki í daglegu amstri við að taka upplýstar ákvarðanir um ferðir, vinnu eða annað,“ segir Hildigunnur H. H. Thorsteinsson, forstjóri Veðurstofunnar. „Með loftslagsbreytingum sjáum við að skriðuhætta fer vaxandi og nýju síðurnar miða við að upplýsingar um hana séu aðgengilegar, notendavænar og í takti við aðrar nýjar síður hjá okkur,“ segir Hildigunnur.
Nýju skriðusíðurnar eru enn í þróun og hvetjum við notendur til að kynna sér nýju síðurnar og
senda Veðurstofunni ábendingar um hvað virkar vel og hvað mætti betur fara í framsetningu og notendaupplifun.
— Á nýju síðunum má finna:
Nánari upplýsingar um staðbundna hættu
Litakóðaðar viðvaranir líkt og fyrir veður
Mikilvæg viðbót við þjónustu Veðurstofunnar