Nýr vedur.is kominn í loftið

17.11.2026

Nýtt

Nýr vedur.is kominn í loftið

Efnisyfirlit

Nýr vedur.is veitir veðurspár fyrir mun fleiri staði, fleiri möguleika á kortum og betri yfirsýn yfir viðvaranir og náttúruvá. Opnunin er fyrsti áfangi í endurnýjun vefsvæða Veðurstofunnar sem á að gera mikilvægar upplýsingar skýrari og aðgengilegri.

Skjáskot af nýrri veðurspásíðu vedur.is. Veðurspár fyrir fimm staði birtast í töflu og neðan hennar eru kort með veðurviðvörunum, staðaspám og nýjustu jarðskjálftum.

Í dag fór í loftið endurnýjaður vefur Veðurstofu Íslands á vedur.is. Endurnýjunin er stór liður í áframhaldandi þróun stafrænnar þjónustu stofnunarinnar. Markmiðið er að upplýsingar um veður og náttúruvá séu skýrar, aðgengilegar og auðveldar í notkun.

Vefurinn er endurnýjaður í áföngum. Í dag fara í loftið þær síður sem notendur heimsækja mest, svo sem veðurspár, jarðskjálftagögn, viðvaranir, tilkynningar frá sólarhringsvaktinni og fréttir. Stöðum sem fá veðurspá fjölgar verulega og nýir möguleikar á kortum auðvelda fólki að skoða aðstæður þar sem það býr, starfar eða hyggst ferðast.

„Veðurstofa Íslands gegnir mikilvægu hlutverki í að miðla upplýsingum sem varða öryggi almennings, innviði og daglegt líf um land allt. Með nýjum vef viljum við gera fólki auðveldara að finna þær upplýsingar sem það þarf þegar á reynir, hvort sem er að velja útiföt á morgnana eða skipuleggja viðbragðsáætlanir.“

Hildigunnur H. H. Thorsteinsson, forstjóri Veðurstofu Íslands.

„Miðlun Veðurstofunnar snýst um að réttar upplýsingar berist í tæka tíð til þeirra sem þurfa á þeim að halda og skilaboðin séu skiljanleg svo hægt sé að bregðast við þeim. Þetta hefur verið leiðarljós við hönnun á nýjum vef sem við erum mjög stolt að opna í dag,“ segir Hildigunnur.

Veðurþáttakort af Íslandi með vind-, hita- og úrkomuspá. Upplýsingagluggi sýnir spágildi á völdum stað, kortastillingar eru opnar hægra megin og tímastika neðst.

Helstu nýjungar á vedur.is

Hvernig vistarðu uppáhaldsstaði, skoðar veðurspá eftir ferðaleið eða lest úr kortunum? Á síðunni „Spurt og svarað“ finnurðu leiðbeiningar í texta, myndum og myndböndum um helstu möguleika nýja vefsins.

Bætt aðgengi að rannsóknum, náttúruvár- og loftslagsþjónustu 

Opnunin í dag er jafnframt fyrsti áfangi í bættu aðgengi að annarri þjónustu Veðurstofunnar, svo sem langtímahættumati vegna náttúruvár, loftslagsþjónustu og aðlögun vegna loftslagsbreytinga. Það efni verður framvegis birt á sérstöku vefsvæði sem tileinkað er „Þjónustu og rannsóknum“ og er aðgengilegt á léninu vedurstofan.is. 

Skjáskot af síðunni „Þjónusta og rannsóknir“ með inngangi yfir jöklamynd og þremur efnisflokkum: loftslagsþjónustu og aðlögun, náttúruvárþjónustu og rannsóknum.

„Þarfir þeirra hópa sem Veðurstofan þjónustar eru ólíkar þegar kemur að vefnum. Með nýja vefnum viljum við bæta aðgengi og framsetningu að gögnum og upplýsingum fyrir stofnanir, sveitarfélög og hagaðila okkar sem vinna t.d. að skipulagsmálum til langs tíma. Nýr vefur auðveldar Veðurstofunni til framtíðar að bregðast við aukinni þörf á bættu aðgengi að langtímahættumati og upplýsingum um loftslagsbreytingar og aðlögun vegna þeirra,“ segir Hildigunnur. 

Fram undan er einnig vinna við nýjar síður sem bæta aðgengi samstarfsaðila okkar að rannsóknaverkefnum en þær síður munu einnig gefa almenningi innsýn í fjölbreytt vísindastarf Veðurstofunnar.  

Áframhaldandi endurnýjun og aðgangur að eldri vef

Endurnýjun vefsvæða Veðurstofunnar heldur áfram fram á næsta ár, meðal annars við vefsíður fyrir sjóveður, flugveður, vatnafar og upplýsingasíðu um stöðu virkni í helstu eldstöðvum landsins.  

Ekki er allt efni sem hefur verið aðgengilegt á eldri vef farið að birtast á nýja vefnum. Meðan á endurnýjuninni stendur eru upplýsingar áfram aðgengilegar á eldri.vedur.is. Hnappur efst á forsíðu nýja vefsins vísar þangað.  

Vefurinn mótaður í samvinnu við notendur 

Eldri vefur Veðurstofunnar hefur þjónað landsmönnum vel í nær 20 ár. Á þeim tíma hafa tæknin og þarfir notenda breyst mikið. Nýi vefurinn gefur færi á að nýta gögn Veðurstofunnar betur og þróa stafræna þjónustu áfram. 

Vefurinn er unninn í samstarfi við Origo og Metall Design Studio. Að baki honum er einnig umfangsmikil endurnýjun á tæknilegum innviðum vefsins þar sem gerðar eru miklar  kröfur um rekstraröryggi. Það skiptir sérstaklega máli þegar náttúruvá steðjar að og margir sækja upplýsingar samtímis en ekki síður á tímum þegar netárásum á mikilvæga stafræna innviði fjölgar. 

Við þróun vefsins var byggt á könnunum, viðtölum og prófunum með notendum. Sérstök áhersla var lögð á skýra framsetningu, sýnilegar viðvaranir, aðgengi og notkun í farsímum. 

„Veðurstofan gerir reglulega viðhorfskannanir með þátttöku almennings og helstu hagaðila. Þessar kannanir nýtast við smíði á nýjum vef og við erum líka gífurlega þakklát fyrir hversu notendur eru duglegir að senda ábendingar sem hjálpa okkur að gera þjónustuna enn betri,“ segir Haukur Hauksson, samskiptastjóri Veðurstofu Íslands.  

„Það er margt að uppgötva á nýja vefnum og við hlökkum til að sjá hvernig fólk nýtir sér möguleikana.“

Haukur Hauksson, samskiptastjóri Veðurstofu Íslands.  

Ábendingar má senda á nyrvefur@vedur.is. Þær nýtast við áframhaldandi þróun og forgangsröðun verkefna. 

Bætt aðgengi að rannsóknum, náttúruvár- og loftslagsþjónustu 

Áframhaldandi endurnýjun og aðgangur að eldri vef

Vefurinn mótaður í samvinnu við notendur