1. Forsíða
  2. Fréttir
  3. Þrjú ár frá upphafi eldsumbrota við Sundhnúksgígaröðina

24.11.2026

Nýtt

Þrjú ár frá upphafi eldsumbrota við Sundhnúksgígaröðina

Efnisyfirlit

Í nóvember eru þrjú ár liðin frá myndun fyrsta kvikugangsins við Sundhnúksgígaröðina. Kvikugangurinn leiddi til rýmingar Grindavíkur og markaði upphaf þeirrar eldsumbrotahrinu sem enn stendur yfir. Af því tilefni er litið til baka á upphaf hrinunnar og þróunina síðan.

Kvikugangurinn sem myndaðist 10. nóvember 2023 var um 15 km langur, náði niður á um 5 km dýpi og teygði sig frá Kálffellsheiði í norðri, í gegnum Grindavík og suður fyrir ströndina, út á sjó. Kvikuganginum fylgdi afar mikil skjálftavirkni. Þann sólarhring mældust rúmlega 2.000 skjálftar, þar af rúmlega 200 af stærð 3 eða meiri.

Kort af suðvestanverðum Reykjanesskaga sem sýnir staðsetningar jarðskjálfta stærri en 3 þann 10. nóvember 2023. Skjálftarnir raðast einkum frá svæðinu norðaustan við Þorbjörn, í gegnum Grindavík og suður fyrir ströndina.

Skjáskot úr Skjálfta Lísu sem sýnir yfirfarna skjálfta yfir 3 að stærð þann 10. nóvember.

Mikil skjálftavirkni hélt áfram næstu daga og olli, ásamt umfangsmiklum jarðskorpuhreyfingum, verulegu tjóni á mannvirkjum og innviðum í Grindavík. Atburðirnir höfðu því ekki aðeins í för með sér miklar breytingar í jarðskorpunni heldur einnig víðtæk áhrif á samfélagið í Grindavík.

Umfangsmiklar jarðskorpuhreyfingar og myndun sigdals

Mikil aflögun jarðskorpunnar mældist í tengslum við myndun kvikugangsins, bæði landris og landsig. Í aðdraganda atburðanna hafði land risið um 7 cm á tímabilinu 27. október til 10. nóvember 2023. Við myndun kvikugangsins urðu síðan snöggar og umfangsmiklar jarðskorpuhreyfingar. Þá myndaðist um 2 km breiður sigdalur í tengslum við kvikuganginn og mældist landsigið mest um 1,3 metrar.

Þessar miklu jarðskorpuhreyfingar endurspegluðu umfang kvikuhlaupsins og þær breytingar sem urðu á spennuástandi jarðskorpunnar þegar kvikan braut sér leið og myndaði kvikuganginn.

Kort af sigdalnum við Grindavík og þrjú línurit frá GPS-stöðinni í Svartsengi. Línuritin sýna snögga færslu til norðurs og vesturs og landsig við kvikuhlaupið 10. nóvember 2023.

Til vinstri sést sigdalurinn sem myndaðist við kvikuhlaupið 10. nóvember 2023. Grænu punktarnir tákna GPS-mælistöðvar. Til hægri eru mælingar frá GPS-stöðinni í Svartsengi (SENG) frá september til nóvember 2023. Bláa línan markar kvikuhlaupið og sýna mælingarnar snöggar breytingar á staðsetningu og hæð stöðvarinnar.

Frá fyrsta kvikuganginum til níu eldgosa á Sundhnúksgígaröðinni


Eftir að kvikugangurinn myndaðist hófst landris að nýju þann 11. nóvember 2023 og hélt áfram fram til 18. desember sama ár, þegar fyrsta eldgosið hófst á Sundhnúksgígaröðinni. Það eldgos markaði upphaf nýs kafla í atburðarásinni á Reykjanesskaga. Síðan þá hafa alls níu eldgos orðið á Sundhnúksgígaröðinni. Endurtekin kvikuhlaup og kvikusöfnun undir Svartsengi hafa jafnframt einkennt virknina.

Þrátt fyrir að þrjú ár séu liðin frá myndun fyrsta kvikugangsins er atburðarásinni ekki lokið. Kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi og líklegasta sviðsmyndin er að kvika hlaupi á ný úr söfnunarsvæðinu yfir í Sundhnúksgígaröðina. Slíkt kvikuhlaup gæti leitt til tíunda eldgossins á svæðinu. Ekki er hægt að segja til um hvenær næsti atburður verður og áfram þarf að gera ráð fyrir að fyrirvari geti orðið stuttur.

Þótt þekking á hegðun eldstöðvakerfisins hafi aukist verulega á undanförnum þremur árum er áfram mikilvægt að fylgjast náið með þróun jarðskorpuhreyfinga, skjálftavirkni og öðrum mælingum sem geta gefið vísbendingar um breytingar á virkni svæðisins.

Í atburðarþræðinum Staðan á Reykjanesskaga má fylgjast með þróuninni og lesa tímasettar uppfærslur Veðurstofunnar um landris, kvikusöfnun, skjálftavirkni og hættumat.

Lóðrétt tímalína með dagsetningum tólf eldgosa, flokkuðum eftir árum frá 2021 til 2025. Sex eldgos urðu árið 2024 og tvö árið 2025. Myndun kvikugangsins við Sundhnúksgígaröðina 10. nóvember 2023 er auðkennd í appelsínugulum reit.

Tímalína eldvirkni á Reykjanesskaga frá 2021 til 2025. Á tímabilinu urðu þrjú eldgos við Fagradalsfjall og níu við Sundhnúksgígaröðina. Myndun kvikugangsins 10. nóvember 2023 er sérstaklega merkt.

Umfangsmiklar jarðskorpuhreyfingar og myndun sigdals

Frá fyrsta kvikuganginum til níu eldgosa á Sundhnúksgígaröðinni