16.11.2026
Nýtt
Frá alsól til almyrkva: Orð sem vakti forvitni um veðursöguna
Tveimur dögum áður en tunglið huldi sólina í almyrkva blöstu heil sólartákn við á öllum yfirlitsstöðvum á veðurkorti Veðurstofu Íslands. Rithöfundurinn Andri Snær Magnason kallaði þetta „alsól“ í færslu á Facebook. Orðið vakti forvitni og varð tilefni til að skoða nær 80 ára sögu skýjahuluathugana Veðurstofunnar. Niðurstaðan var athyglisverð: Á öllu tímabilinu fundust aðeins 81 dagur þegar ský huldu að meðaltali minna en fjórðung himins yfir landinu.

Veðurspá Veðurstofu Íslands fyrir 10. ágúst 2026 klukkan 12. Sólartákn voru við allar yfirlitsstöðvar landsins. Kortið hefur verið endurgert í nýju útliti Veðurstofunnar og sýnir sömu spá og birtist á upprunalega kortinu.
Íslenskan, veðrið og ný orð
Í tilefni dags íslenskrar tungu, 16. nóvember, beinum við sjónum að orðunum sem við notum um veðrið. Í fyrra rifjuðum við upp þann ótrúlega fjölda orða sem íslenskan á yfir vindinn, allt frá mildum andvara til mannskaðaveðurs.
Vindurinn á íslensku: 391 orð um vindinn
En orðaforðinn yfir heiðan himin er einnig fjölbreyttur. Himinninn getur verið heiðskír, heiðbjartur, skafheiðríkur, sólheiður eða skýjalaus.
Í sumar bættist orðið alsól við umræðuna þegar landsmenn biðu almyrkvans 12. ágúst. Orðið lýsti spánni sem birtist á veðurkortinu tveimur dögum fyrir almyrkvann: heiðskírt um allt land, en vakti jafnframt áhugaverða spurningu: Hversu oft er svo heiðskírt um nær allt Ísland á sama degi?
Dagur íslenskrar tungu er haldinn á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar, sem var ekki aðeins skáld heldur líka náttúrufræðingur og ötull orðasmiður. Hann lagði sitt af mörkum til að skapa íslenskan orðaforða um náttúru og vísindi.
Jónas Hallgrímsson og orðin um himininn
Orðið alsól er skemmtilegt dæmi um hvernig íslenskan heldur áfram að þróast. Í þetta sinn varð nýtt orð í umræðu um veðurkort tilefni til að skoða nær 80 ára veðursögu.
Aðeins 81 dagur á tæpum 80 árum
Til að svara spurningunni tóku Trausti Jónsson veðurfræðingur og Kristín Björg Ólafsdóttir, sérfræðingur á sviði veðurfarsrannsókna, saman skýjahuluathuganir frá mönnuðum veðurstöðvum Veðurstofu Íslands allt aftur til ársins 1949.

Trausti Jónsson veðurfræðingur bendir á veðurkort í sjónvarpssal RÚV í október 1991. Á kortinu má sjá hvernig skýjahula var sýnd með hringjum sem voru fylltir mismikið eftir því hversu skýjað var. Bogi Ágústsson er í bakgrunni. Myndin var tekin þegar veðurfréttir voru rifjaðar upp í anda þess sem tíðkaðist 25 árum fyrr. Ljósmynd: Gunnar V. Andrésson / Borgarsögusafn Reykjavíkur.
Þau reiknuðu meðalskýjahulu fyrir hvern dag og könnuðu hversu oft hún hefði verið minni en tveir áttunduhlutar, sem þýðir að innan við fjórðungur himins var hulinn skýjum að meðaltali. Frá 1949 til 10. ágúst 2026 fundust aðeins 81 dagur sem uppfyllti þetta skilyrði, eða rétt rúmlega einn dagur á ári að meðaltali.
Dagurinn 10. ágúst var einn þeirra. Meðalskýjahulan var 1,94 áttunduhlutar og reyndist hann sjöundi heiðasti ágústdagurinn í samantektinni.
Þótt sólartáknin á veðurspákortinu hafi vakið spurninguna byggist samantektin á skýjahuluathugunum en ekki veðurspám. Því er ekki um nákvæmlega sama mælikvarða að ræða.
Hvað eru áttunduhlutar?
Skýjahula er metin í áttunduhlutum eftir því hversu stór hluti himinsins er hulinn skýjum. Kvarðinn nær frá núlli upp í átta. Núll merkir heiðskírt, fjórir að helmingur himinsins sé hulinn skýjum og átta að alskýjað sé.
Á hefðbundnum veðurkortum er skýjahula sýnd með hringjum sem eru skyggðir eftir því hversu stór hluti himinsins er hulinn skýjum. Óskyggður hringur táknar heiðskírt veður, hálfskyggður hringur að helmingur himinsins sé hulinn skýjum og alskyggður hringur alskýjað veður.

Heiðasti dagurinn var í maí 2025
Heiðasti dagurinn í samantekt Trausta og Kristínar Bjargar var 18. maí 2025. Þá var meðalskýjahulan aðeins 0,68 áttunduhlutar, sem jafngildir því að um 8,5% himinsins hafi að meðaltali verið hulin skýjum. Dagurinn féll í miðja óvenjulega hitabylgju sem gekk yfir Ísland í maí það ár.
Aðeins fjórir dagar í samantektinni voru með meðalskýjahulu undir einum áttunduhluta.
Heiðustu dagarnir
Dagsetning | Meðalskýjahula (af 8) |
|---|---|
18. maí 2025 | 0,68 |
2. apríl 1999 | 0,73 |
14. september 1994 | 0,83 |
13. júlí 1992 | 0,96 |
1. júní 2012 | 1,07 |
Árið 2012 sker sig einnig úr. Þá voru sjö dagar með meðalskýjahulu undir tveimur áttunduhlutum, fleiri en nokkurt annað ár í samantektinni. Fjórir þeirra komu í röð, frá 31. maí til 3. júní, og mynda lengsta samfellda heiðviðriskastið samkvæmt þessari skilgreiningu.
Þegar dagarnir 81 eru skoðaðir eftir mánuðum kemur í ljós að maí og september eiga flesta, 13 hvor. Október á hins vegar aðeins einn slíkan dag, 23. október 1966.
-768x403.webp)
Fjöldi daga eftir mánuðum þegar meðalskýjahula á Íslandi var undir tveimur áttunduhlutum á tímabilinu 1949 til 10. ágúst 2026. Heimild: Veðurstofa Íslands.
Veðursagan varðveitt í athugunum
Samantekt Trausta og Kristínar Bjargar byggist á skýjahuluathugunum frá mönnuðum veðurstöðvum. Fjöldi og dreifing stöðvanna hefur breyst mikið á tímabilinu, einkum eftir að sjálfvirkar veðurstöðvar tóku við stórum hluta veðurmælinga.
Því þarf að hafa fyrirvara á samanburði milli ára og áratuga. Gögnin gefa þó góða vísbendingu um hvaða dagar hafa verið óvenju heiðir á landsvísu.
Frá alsól til almyrkva á tveimur dögum
Gervihnattamyndir frá 10. og 12. ágúst sýna glögglega hversu breytilegt skýjafarið getur verið á Íslandi.
Á MODIS-mynd frá 10. ágúst klukkan 11:15 sést stór hluti landsins vel og víða er lítið um ský. Tveimur dögum síðar, 12. ágúst klukkan 10:55, er mun meiri skýjahula yfir landinu og stór hluti þess hulinn skýjum.
Myndirnar eru teknar að morgni beggja daga og sýna því ekki skýjahuluna þegar almyrkvinn varð síðar 12. ágúst. Þær sýna hins vegar vel hversu mikið veðrið getur breyst á skömmum tíma.

Gervihnattamyndir frá 10. og 12. ágúst 2026 sýna mikinn mun á skýjafari. Á myndinni til vinstri sést stór hluti Íslands vel og víða er lítið um ský. Á myndinni til hægri, sem tekin var tveimur dögum síðar, er mun meiri skýjahula yfir landinu. Myndirnar voru teknar um klukkan 11 að morgni beggja daga, áður en almyrkvinn varð 12. ágúst. Myndir: MODIS / Veðurstofa Íslands.
Þannig varð eitt orð í færslu á samfélagsmiðlum tilefni til að skoða nær 80 ára sögu veðurathugana en sagan nær þó mun lengra aftur. Orðið alsól lýsir sjaldgæfu fyrirbæri en minnir um leið á hvernig tungumálið getur vakið nýjar spurningar um náttúruna og það sem við teljum okkur þekkja.
Hugum vel að íslenskunni og öllum fallegu orðunum sem hafa orðið til í aldalöngum samskiptum okkar við landið, veðrið og náttúruna. Tungumálið er þó lifandi og gefur okkur sífellt tækifæri til að finna ný orð yfir það sem fyrir augu ber.
Gleðilegan dag íslenskrar tungu!
Íslenskan, veðrið og ný orð
Aðeins 81 dagur á tæpum 80 árum
Hvað eru áttunduhlutar?
Heiðasti dagurinn var í maí 2025
Veðursagan varðveitt í athugunum
Frá alsól til almyrkva á tveimur dögum
Gleðilegan dag íslenskrar tungu!
-768x590.webp)