Suðvestlæg eða breytileg átt 3-8 og bjartviðri. Þykknar upp í kvöld og sums staðar lítilsháttar væta í nótt. Suðaustan 5-13 eftir hádegi á morgun og yfirleitt þurrt. Hiti 8 til 14 stig yfir daginn.
Spá gerð: 23.05.2024 09:50. Gildir til: 25.05.2024 00:00.
Á laugardag:
Suðaustan 8-15 m/s, skýjað og súld eða dálítil rigning með köflum. Hiti 10 til 15 stig. Heldur hægari vindur á norðanverðu landinu og bjart að mestu með hita að 20 stigum.
Á sunnudag:
Suðaustan- og austanátt, víða á bilinu 5-10. Skýjað með köflum og úrkomulítið. Hiti 12 til 18 stig.
Á mánudag og þriðjudag:
Hæg breytileg átt. Skýjað með köflum á landinu og sums staðar dálítil væta. Líkur á þokumóðu við ströndina. Hiti 7 til 16 stig, hlýjast inn til landsins.
Á miðvikudag:
Norðaustan 3-10. Súld eða lítilsháttar rigning norðan- og austanlands. Bjart með köflum og stöku skúrir sunnan heiða. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast suðvestantil á landinu.
Spá gerð: 23.05.2024 09:01. Gildir til: 30.05.2024 12:00.