Veðurhorfur á landinu

Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu

Norðvestan 3-8 m/s og bjart með köflum í dag, en norðaustan 5-10 í kvöld. Hiti 5 til 9 stig. Gengur í austan 8-15 á morgun, en hvassara á Kjalarnesi. Rigning og hiti 3 til 6 stig.
Spá gerð: 18.05.2024 11:28. Gildir til: 20.05.2024 00:00.

Suðurland

Norðaustlæg átt 3-10 m/s og léttskýjað. Gengur í austan og suðaustan 10-18 með rigningu á morgun en 18-23 austast. Hiti 5 til 10 stig. Dregur úr vindi annað kvöld.
Spá gerð: 18.05.2024 09:43. Gildir til: 20.05.2024 00:00.

Faxaflói

Hægt vaxandi norðaustanátt og bjart með köflum á morgun, 5-13 m/s síðdegis. Hiti 4 til 9 stig. Austan og norðaustan 13-20 og rigning á morgun, hvassast í vindstrengjum við fjöll. Hiti 2 til 6 stig.
Spá gerð: 18.05.2024 09:43. Gildir til: 20.05.2024 00:00.

Breiðafjörður

Norðaustan 5-10 og stöku él eða skúrir, hiti 2 til 7 stig. Norðaustan 8-15 og rigning eða slydda á morgun, hiti 1 til 5 stig. Hvessir aðeins annað kvöld.
Spá gerð: 18.05.2024 09:43. Gildir til: 20.05.2024 00:00.

Vestfirðir

Norðaustan 5-10 og lengst af þurrt. Hvessir í nótt, norðaustan 8-15 á morgun. Rigning eða slydda með köflum síðdegis. Hiti 0 til 5 stig.
Spá gerð: 18.05.2024 09:43. Gildir til: 20.05.2024 00:00.

Strandir og Norðurland vestra

Norðan 5-10 og dálítil él eða skúrir, hiti 0 til 5 stig að deginum. Austlæg átt 5-13 og rigning eða slydda með köflum en austan 8-15 seinnipartinn.
Spá gerð: 18.05.2024 09:43. Gildir til: 20.05.2024 00:00.

Norðurland eystra

Norðvestan 5-10 og styttir upp. Hiti 0 til 5 stig. Austan og suðaustan 5-13 á morgun. Rigning eða slydda með köflum síðdegis. Hvessir heldur annað kvöld.
Spá gerð: 18.05.2024 09:43. Gildir til: 20.05.2024 00:00.

Austurland að Glettingi

Norðvestan 8-13 og styttir upp, hiti 2 til 7 stig. Hægt vaxandi austanátt á morgun, 8-15 með rigningu eða slyddu síðdegis. Hiti 0 til 4 stig.
Spá gerð: 18.05.2024 09:43. Gildir til: 20.05.2024 00:00.

Austfirðir

Norðvestan 8-13 og yfirleitt bjart, hiti 1 til 10 stig. Austan 5-10 á morgun. Rigning eða slydda, einkum seinnipartinn. Hiti um eða yfir frostmarki.
Spá gerð: 18.05.2024 09:43. Gildir til: 20.05.2024 00:00.

Suðausturland

Austlæg eða breytileg átt 5-10 og bjartviðri, hiti 7 til 13 stig yfir daginn. Gengur í austan 15-23 með rigningu eða slyddu á morgun, hvassast í Öræfum.
Spá gerð: 18.05.2024 09:43. Gildir til: 20.05.2024 00:00.

Miðhálendið

Norðlæg átt 5-13 og dálítil él, en þurrt og bjart sunnan jökla. Hiti um frostmark, en að 5 stigum sunnantil. Hægt vaxandi austanátt með snjókomu eða slyddu á morgun, 13-20 m/s síðdegis. Hiti nálægt frostmarki.
Spá gerð: 18.05.2024 09:43. Gildir til: 20.05.2024 00:00.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á mánudag (annar í hvítasunnu):
Suðlæg átt 3-10 m/s, en austan 8-15 við norðurströndina fram eftir morgni. Rigning með köflum víða um land. Bjart með köflum en stöku skúrir suðvestanlands. Hiti 3 til 10 stig.

Á þriðjudag og miðvikudag:
Suðlæg eða breytileg átt 3-10 og dálítil væta með köflum. Hiti 4 til 10 stig.

Á fimmtudag:
Norðlæg eða breytileg átt og dálítil rigning en styttir upp sunnanlands. Hiti 2 til 10 stig, mildast sunnan heiða.

Á föstudag:
Útlit fyrir vaxandi suðaustanátt. Þykknar upp og fer að rigna sunnan- og vestanlands seinnipartinn. Hiti 8 til 13 stig.
Spá gerð: 18.05.2024 08:31. Gildir til: 25.05.2024 12:00.


Textaspár eru skrifaðar af vakthafandi veðurfræðingi á Veðurstofu Íslands.




Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica