Spá um snjóflóðahættu

Mat á snjóflóðaaðstæðum

Snjóþekja er almennt stöðug og jafnhita um land allt eftir hlýindi síðustu viku og síðan dægursveiflur. Óstöðugir vindflekar gætu lifað efst til fjalla á Austfjörðum. Stór náttúruleg flekaflóð hafa fallið í kjölfar hlýinda í síðustu viku og um helgina á Norðurlandi og búast má við að veikleiki sé enn til staðar til fjalla en haldi áfram að styrkjast í dægursveiflum og mildu veðri næstu daga.
Skrifað af vakthafandi sérfræðingi 29. apr. 14:31

Snjóflóðaspá fyrir valin svæði

Spáin er gerð fyrir stór landsvæði og þarf ekki að vera lýsandi fyrir snjóflóðahættu í byggð. Hún er einkum gerð með ferðafólk í fjalllendi í huga og tekur bæði til snjóflóða af mannavöldum og veðurtengdra snjóflóða.

Veðurútlit með tilliti til snjóflóða

Lítilsháttar éljagangur norðan og austantil á landinu en annars hæglætis veður um allt land. Á fimmtudag er búist við úrkomu í suðlægum áttum á vestanverðu landinu.
Skrifað af vakthafandi sérfræðingi 29. apr. 14:29


Snjóflóðahættutafla

Mjög mikil hætta
Mikil hætta
Töluverð hætta
Nokkur hætta
Lítil hætta

Nánar


Um spárnar

Snjóflóðaspá er gerð mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 16 og uppfærð oftar ef þurfa þykir.

Spáin gildir fyrir stór landsvæði, ekki einstök gil, og er einkum gerð með ferðafólk í fjalllendi í huga. Spáin þarf ekki að vera lýsandi fyrir snjóflóðahættu í byggð.

Nánar





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica