Veðurstofa íslands

Valmynd.


  • Viðvörun

    Búist er við stormi (meðalvindi meiri en 20 m/s) um landið N- og V-vert, og jafnvel roki (meðalvindi um eða yfir 25 m/s) NV-til í fram eftir nóttu. Gildir til 09.02.2012 01:00 Meira
Vistfræði

Samþætt umhverfisvöktun

Litla-Skarð í Borgarfirði

Samþætt umhverfisvöktun (Integrated Monitoring) hófst að Litla-Skarði í Borgarfirði árið 1996. Slík vöktun hefur farið fram á Norðurlöndum lengi og er hluti rannsókna á vegum Efnahagsnefndar Evrópu vegna samnings um hnattræna loftmengun.

Fylgst er með ýmsum eðlis-, efna- og líffræðilegum þáttum á afmörkuðu vatnasviði og reynt að meta vistfræðileg áhrif loftslagsbreytinga.

Rannsóknastofnun landbúnaðarins hafði forgöngu um málið hér á landi, ásamt Hollustuvernd ríkisins, Skógrækt ríkisins og Veðurstofu Íslands.

Fljótlega bættust Náttúrufræðistofnun Íslands og Vatnamælingar Orkustofnunar í hópinn, Umhverfisstofnun tók við þætti Hollustuverndar og nú sem stendur er Landbúnaðarháskóli Íslands á Hvanneyri í forsvari fyrir verkefninu.

Norræn ráðstefna samþættrar umhverfisvöktunar var haldin hér á landi í maí 2005 og þá var gefin út skýrslan Integrated monitoring at Litla-Skarð, Iceland: project overview 1996-2004 (pdf 2,9 Mb) með niðurstöðum úr Litla-Skarði.

Úr Litla-Skarði
tjörn, svanir, úrkomusafnarar
Úrkomusafnarar í Litla-Skarði. Málmtindar fæla smáfugla frá því að setjast á brúsana. Lambavatn í baksýn og Hafnarfjall í fjarska. Horft í suðurátt. Ljósmynd: Jóhanna M. Thorlacius.

Framlag Veðurstofunnar til þessa verkefnis eru sérhannaðir úrkomusafnarar og sjálfvirk veðurstöð en í mælireitnum eru ekki einungis tekin sýni af úrkomu heldur einnig sýni af lækjarvatni og úr lind.

Litla-Skarð í Borgarfirði
mælitæki á staurum á kjarrivaxinni klöpp
Sjálfvirk veðurstöð, sólarrafhlöður og sjálfvirkur úrkomumælir. Í bakgrunni sést aðstaða til mælinga og söfnunar á lækjarvatni. Horft í norðurátt. Ljósmynd: Elvar Ástráðsson.

Tengt efni

  • Umhverfisráðuneytið
  • Umhverfisstofnun
  • Landgræðsla ríkisins
  • Landbúnaðarháskóli Íslands
  • Náttúrufræðistofnun Íslands
  • Náttúrurannsóknastöðin við Mývatn
  • Skógrækt ríkisins
  • Stofnun Vilhjálms Stefánssonar
  • Norska loftrannsóknastofnunin
  • Samningurinn um loftmengun sem berst langar leiðir
Þú ert hér: Forsíða > Mengun > Mengun > Vistfræði

vedur.is

  • Forsíða
  • Veður
  • Jarðhræringar
  • Vatnafar
  • Ofanflóð
  • Loftslag
  • Hafís
  • Mengun
  • Um Veðurstofuna

Mengun

  • Mengun
    • Sýnaraðir
    • Brennisteinn
    • Þungmálmar
    • Þrávirk lífræn efni
    • Vistfræði
    • Stórhöfði
    • Gróðurhúsalofttegundir
    • Um lofttegundirnar
  • Geislun
  • Óson
  • Fróðleikur

Samskipti

© Veðurstofa Íslands - Bústaðavegi 7-9, 150 Reykjavík - Sími: 522 6000, Fax: 522 6001 - Símsvari:902 0600 - Kennitala: 630908-0350
Hafa samband - Starfsfólk - Notkunarskilmálar - Veftré - Spurt og svarað um vefinn


Gæðavottun veðurspáþjónusta Veðurstofunnar Aðgengisvottun fyrir forgang 1 Aðgengisvottun fyrir forgang 2

Leit á vefsvæðinu


Aðrir tengdir vefir

  • English
  • Farsímavefur

Þetta vefsvæði byggir á Eplica