Gæðavottun
Veðurstofa Íslands rekur gæðastjórnunarkerfi samkvæmt alþjóðlega gæðastaðlinum ISO 9001.
Flugveðurþjónusta Veðurstofunnar var gæðavottuð 2006 af British Standard Institute (BSI). Ísland hefur veigamiklu hlutverki að gegna varðandi öryggismál fyrir alþjóðlega flugumferð á Norður-Atlantshafssvæðinu.
Önnur veðurþjónusta Veðurstofunnar var gæðavottuð 2007, þ.e. almenn veðurþjónusta, sjóveður-þjónusta og hafísþjónusta.
Þá voru vatnamælingar, jarðváreftirlit og ofanflóðavöktun gæðavottuð í júní 2012. Nýtt vottunarskjal var gefið út í kjölfarið.
Markmið Veðurstofunnar er að gæðavottun taki til allar starfsemi stofnunarinnar 2016. Það felur í sér:
- Að öll þjónusta lúti skilgreindum og skilvirkum verkferlum
- Að þjónustan uppfylli þær gæðakröfur sem til hennar eru gerðar
Gæðavottun starfsemi veðurstofa víða um heim er mikilvæg til að bæta rekstur þeirra og til að koma til móts við kröfur notenda.
