Útgáfa á vegum Veðurstofunnar

Útgáfa á vegum Veðurstofu Íslands er skráð í landskerfi bókasafna, www.gegnir.is.

Veðurstofa Íslands hin eldri og Vatnamælingar sameinuðust í nýrri stofnun 1. janúar 2009. Veðurstofan hin eldri gaf út rit, greinargerðir og skýrslur auk veðurfarsyfirlits. Stór hluti efnisins er aðgengilegur rafrænt hér á vefnum og í landskerfi bókasafna. Útgáfa Vatnamælinga var skráð rafrænt í landskerfi bókasafna og þar er aðgangur að opnum skýrslum og greinargerðum. Upplýsingar um útgáfu sem ekki er rafræn eru veittar á bókasafni á opnunartíma Veðurstofunnar.

Vinsamlegast athugið að skjöl á vef Veðurstofunnar eru jafnan á PDF-sniði.
Forrit til að lesa PDF skjöl.

Tímaritið Veðráttan

Veðurstofan gefur einnig út veðurfarsyfirlit liðins mánaðar í byrjun hvers mánaðar og notar til þess athuganir í Reykjavík, á Akureyri, í Akurnesi, í Keflavík og á Hveravöllum. Niðurstöður mælinga á mönnuðum stöðvum eru birtar í tímaritinu Veðráttan 1924-1997.

Forverar Veðráttunnar voru Íslensk veðurfarsbók, sem kom út á árunum 1920-1923, og Meteorologisk aarbog, II del. Færøerne, Island, Grønland og Vestindien, sem gefin var út af dönsku veðurstofunni - Danmarks Meteorologiske Institut 1873-1919.

Ofanflóðahættumat

Á vefsíðu ofanflóða er að finna skýrslur og aðrar upplýsingar um hættumat fyrir helstu þéttbýlisstaði landsins sem búa við snjóflóðahættu. Fyrir hvern stað kemur fram hversu langt vinna við hættumatið er komin og á sérstökum vefsíðum staðanna má nálgast gögn með nánari upplýsingum.

 




Aðrir tengdir vefir


Eplica CMS. eplica cmscms - for more info goto http://www.eplica.is.