Vikulegt jarðskjálftayfirlit

Jarðskjálftavirkni á öllu landinu er lýst í vikuyfirliti sem birt er á vefnum. Náttúruvársérfræðingur á vakt skrifar vikuyfirlitið sem birt er á þriðjudögum. Þar er farið yfir virkni vikunnar á öllum jarðskjálftasvæðum og í eldstöðvarkerfum á landinu. Ef jarðskjálftahrinur eru í gangi, stærri skjálftar eða aðrir markverðir atburðir hafa orðið í vikunni er fjallað sérstaklega um það.

Vikuyfirlit

Jarðskjálftayfirlit viku 1, 1. – 7. Janúar 2024

Reykjanesskagi og Reykjaneshryggur

Ríflega 2450 mældust á Rekjanesskaga í vikunni, þar af stærsti skjálfti vikunnar, 4,2 að stærð og um 1100 í eftirskjálftahrinu við Trölladyngju. Um 250 skjálftar mældust við Fagradalsfjall og 900 skjálftar í kvikuganginum norðan við Grindavík. Einungis um 500 skjálftar hafa verið yfirfarnir.
Um 5 skjálftar mældust úti á hrygg.

Suðurlandsbrotabeltið og Hengilssvæðið

Á Hengilssvæðinu var nokkuð eðlileg virkni, helst ber að nefna skjálfta í Grænadal af stærð 2,9 kl 2:47 aðfaranótt 2. janúar sem nokkrir fundu í Hveragerði. Skjálftavirkni á Suðurlandsbrotabeltinu var heldur ekki mjög fréttnæm, 30 skjálftar, allir litlir og mjög dreifðir.

Vesturgosbeltið og Mið-Íslandsgosbeltið

6 skjálftar mældust sunnan við Langjökul, einn ofan við Skagafjörð og einn suður af Hofsjökli

Austurgosbeltið

Mýrdalsjökull og Torfajökulssvæði

Í Mýrdalsjökli var nokkuð svipuð virkni og síðustu vikur, 16 skjálftar, stærsti 2,5 að stærð.
Sama má segja um Torfajökulssvæðið, 4 skjálftar þar af stærstur 1,8 að stærð.

Vatnajökull

Í Vatnajökli mældust rúmlega 50 skjálftar og var virknin nokkuð dreifð. Um 20 skjálftar voru í Grímsvötnum, sem er eins og í síðustu viku, en 7 af þeim komu á innan við klukkustund 4. janúar. 5 skjálftar mældust við Vött, 10 skjálftar mældust í Bárðarbungu. Restin dreyfðist nokkuð um jökulinn, þar af einn í Esjufjöllum og tveir í Öræfajökli.

Norðurgosbeltið

Askja og Herðubreið

Um 50 smáskjálftar á þessu svæði, þar af 20 við Öskju.

Krafla og Þeistareykir

15 skjálftar, flestir við Kröflu.

Tjörnesbrotabeltið

4 skjálftar á Tröllaskaga, þar af 3 í Héðinsfirði. 4 skjálftar á Kolbeinseyjarhrygg.

Alls um 80 skjálftar samanlagt á Grímseyjarbrotabeltinu og Húsavíkur-Flateyjarmisgenginu, flestir í hrinu 10km NNA af Grímsey sem hófst skömmu fyrir miðnætti 7. janúar.

Skjálftalisti viku 1





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica