Vikulegt jarðskjálftayfirlit

Jarðskjálftavirkni á öllu landinu er lýst í vikuyfirliti sem birt er á vefnum. Náttúruvársérfræðingur á vakt skrifar vikuyfirlitið sem birt er á þriðjudögum. Þar er farið yfir virkni vikunnar á öllum jarðskjálftasvæðum og í eldstöðvarkerfum á landinu. Ef jarðskjálftahrinur eru í gangi, stærri skjálftar eða aðrir markverðir atburðir hafa orðið í vikunni er fjallað sérstaklega um það.

Vikuyfirlit

Skjálftavirkni 20.-26. febrúar, vika 8, 2023

Um 370 jarðskjálftar mældust með SIL mælakerfi Veðurstofu Íslands í liðinni viku, sem er svipaður fjöldi og í vikunni á undan þegar um 400 skjálftar mældust. Stærsti skjálfti vikunnar á landinu mældist 3,5 að stærð við Herðubreið þann 17. febrúar. Þann 14. febrúar mældist jarðskjálftahrinu norður af Kolbeinsey þar sem 10 skjálftar á bilinu 2,3 –3,6 að stærð. Athygli vakti að gervitunglamyndum sást að ísinn á Öskjuvatni var að miklu leyti búinn að bráðna, sem er að gerast óvenjusnemma á árinu. Síðast gerðist það svo snemma árið 2012, en þá brotnaði ísinn upp í mars. Nánar er farið yfir þennan atburð í frétt á vefsíðu Veðurstofunnar.

Nánar má skoða yfirfarna skjálfta í Skjálfta-Lísu vefsjánni

Suðurland

Tæplega 50 skjálftar mældust á Suðurlandsbrotabeltinu í síðustu viku, skjálftarnir dreyfðust nokkuð um suðurlandið. Stærsti skjálftinn mældist 1.8 að stærð suðaustur af Henglinum. Smá hrina mældist þann 26.febrúar við Eiturhóla. Sex skjálftar mældust í og við Hengilinn og fjórir skjálftar við Þrengslahnúk.

Reykjanesskagi

Tæplega 45 skjálftar mældust á Reykjanesskaga í vikunni, sem er svipaður fjöldi og í vikunni á undan. Stærsti skjálftinn mældist 2,3 að stærð um 2 km norðvestur af Kleifarvatni. Flestir skjálftar mældust í og við Kleifarvatni og við Dalahraun. Þrír skjálftar mældust við Fagradalsfjall og þrír skjálftar við Þórðarfell.

Tæplega 100 skjálftar mældust á Reykjaneshrygg heldur fleiri en í vikunni á undan þegar um 20 skjálftar mældust. Þetta er einna helst vegna hrinu sem hófst um 30 km suðvestur af Reykjanestá þann 21.febrúar en alls mældust um 90 skjálftar í þeirri hrinu, stærsti skjálftinn var 3.1 að stærð. Þá mældust þrír skjálft um 75 km suðvestur af Reykjanestá, stærsti skjálftinn var 2.8 að stærð.

Norðurland

Rúmlega 80 jarðskjálftar mældust á Tjörnesbrotabeltinu í vikunni, sá stærsti 2,8 að stærð staðsettur austan við Grímsey. Rúmlega 70 þessarra skjálfta urðu á Grímseyjarbeltinu þar sem stærsti skjálftinn mældist 2.8 að stærð. Þá mældust þrettán skjálftar á Húsavíkur-Flateyjarmisgenginu og tveir skjálftar langt úti á Kolbeinseyjarhrygg en báðir skjálftarnir mældust 3.1 að stærð.

Einn skjálfti mældist á Kröflusvæðinu, tveir skjálftar við Gjárvegg og einn í Heilagsdalsfjalli.

Hálendið

Tæplega 70 skjálftar mældust á svæðinu við Herðubreið og Herðubreiðartögl. Stærsti skjálftinn þar varð þann 25. febrúar og mældist 2.4 að stærð. Þetta er svipaður fjöldi skjálfta og í vikunni á undan. Tæplega 30 skjálftar mældust í Öskju sem er svipaður fjöldi og í vikunni á undan, flestir mældust austan við Öskjuvatn en aðrir dreyfðu sér um svæðið. Stærsti skjálftinn mældist þann 25.febrúar en hann mældist 2 að stærð. Þá mældust fjórir smáskjálftar við Holuhraun. Um 35 skjálftar mældust í Vatnajökli í vikunni, þar af voru um 20 í Bárðarbungu en stærsti skjálftinn mældist 4.9 þann 21.febrúar sem er jafnframt stærsti skjálfti vikunnar, nokkrir eftirskjálftar fylgdu sá stærsti var 2.7 að stærð. Um 10 skjálftar mældust í Grímsvötnum, sá stærsti var 1.9 að stærð um 6.5 km norður af Grímsfjalli. Þrír skjálftar mældust við Skaftárkatlana og einn skjálfti mældist á Köldukvíslarjökli. Einn skjálfti mældist við Múlahyrnu og einn við suður af Tungnafellsjöli.

Mýrdalsjökull

Um 15 skjálftar mældust í Mýrdalsjökli sem er sami fjöldi og í vikunni á undan. Flestir voru innan öskjunnar í Mýrdalsjökli. Stærsti skjálftinn mældist þann 26.febrúar en hann reyndist 2.6 að stærð en alls mældust 8 skjálftar þann daginn með stuttu millibili. Sex skjálftar mældust norður af Þórisjökli, tveir skjálftar við Lambahraun og tveir skjálftar í um 14 km norðaustur af Langjökli. Þá mældust tveir skjálftar nærri Grjótárvatni, sá stærri 2.1 að stærð.

Skjálftalisti - Vika 8, 2023






Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica