Jarðskjálftayfirlit - ágúst 2026
- Rúmlega 2500 jarðskjálftar mældust á landinu í ágúst.
- Fimm skjálftar mældust yfir 3,0 að stærð í mánuðinum, allir tengdir tveimur hrinum á Reykjaneshrygg (11. og 25. ágúst). Stærstu skjálftar mánaðarins mældust 4,1 að stærð, tveir talsins, þann 25. ágúst.
- Mesta virknin í mánuðinum var á Reykjaneshrygg, þar sem um 660 skjálftar mældust, og Reykjanesskaga þar sem um 600 skjálftar mældust.
- Virkni annars staðar á landinu var hefðbundin miðað við undanfarna mánuði
Í heild var ágústmánuður rólegri en júní og maí, sem einkenndust af óvenju mikilli virkni á Hengilsvæðinu og Bárðarbungu, en svipaður og júlí. Helsta virkni mánaðarins er hrinan á Reykjaneshrygg 25. ágúst þar sem yfir 200 skjálftar mældust á einum degi, þar af tveir yfir 4,0 að stærð.
Nánar má skoða yfirfarna skjálfta á Skjálfta-Lísu Veðurstofunnar
Reykjanesskagi
Um 600 jarðskjálftar mældust á Reykjanesskaga í ágúst, sem er svipað og síðustu tvo mánuði. Meirihluti þeirra, um 400, voru staðsettir á svæðinu við Kleifarvatn, en samtals um 200 mældust á vestanverðum skaganum á svæðunum við Fagradalsfjall, Sundhnúksgígaröðina og nær Reykjanestá. Virkustu dagana mældust í kringum 50 skjálftar á dag, en að öðru leyti var virknin dreifð yfir mánuðinn án afmarkaðrar hrinu. Stærsti skjálftinn á skaganum mældist 2,1 að stærð skammt vestan við Krýsuvík.
Reykjaneshryggur
Um 660 jarðskjálftar mældust á Reykjaneshrygg í ágúst. Meginhluti virkninnar, rúmlega 200 skjálftar, mældust í hrinu sem hófst að nóttu 25. ágúst og stóð í um sólarhring. Hrinan var staðsett um 35 km suðvestur af Reykjanestá (um 20 km suðvestur af Eldey). Í hrinunni mældust stærstu skjálftar mánaðarins, tveir af stærð 4,1, auk fjölda skjálfta á bilinu 2,7–3,6 að stærð.
Minni hrina á sömu slóðum, um 36 skjálftar, mældist þann 11. ágúst, þar af var stærsti skjálftinn 3,3 að stærð.
Hengill
Um 76 jarðskjálftar mældust í og við Hengil í ágúst, sem er nokkru minna en í júlí og töluvert minna en í júní þegar hrinan sem hófst 31. maí var enn í gangi. Stærsti skjálftinn í mánuðinum mældist 2,3 að stærð nærri Ölkelduhálsi austan við Hengilssvæðið.
Suðurland
Rúmlega 200 jarðskjálftar mældust á Suðurlandi í ágúst, sem er nokkru minna en í júlí og undir meðaltali síðustu mánaða.
Suðurlandsbrotabeltið
Um 100 jarðskjálftar mældust á Suðurlandsbrotabeltinu, dreift yfir mánuðinn án afmarkaðrar hrinu. Stærsti skjálftinn mældist 1,5 að stærð.
Hekla
Hefðbundin virkni í ágúst þegar 12 jarðskjálftar mældust í og við Heklu, allir undir 1,5 að stærð.
Katla
Um 70 jarðskjálftar mældust í Mýrdalsjökli í ágúst, þar af flestir, 16 talsins, þann 3. ágúst. Stærsti skjálftinn mældist 2. Ágúst og var 2,7 að stærð. Dagana 18. – 21. Ágúst varð jökulhlaup í Múlakvísl sem kemur undan Kötlujökli. Nánari upplýsingar um jökulhlaupið má finna í frétt á vef VÍ.
Torfajökull
Um 30 jarðskjálftar mældust í og við Torfajökul, dreift nokkuð jafnt yfir mánuðinn. Stærsti skjálftinn mældist 1,7 að stærð.
Eyjafjallajökull
Þrír jarðskjálftar mældust við Eyjafjallajökul í mánuðinum, allt smáskjálftar undir 1,5 að stærð.
Vesturland
Grjótárvatn
Rúmlega 100 jarðskjálftar voru staðsettir á svæðinu við Grjótárvatn í ágúst, þar af um 20 í lítilli hrinu þann 9. Ágúst. Allir skjálftar mánaðarins voru smáskjálftar þar sem stærsti skjálftinn mældist 1,5 að stærð.
Langjökull
Rúmlega 50 jarðskjálftar mældust í og við Langjökul í ágúst, dreift yfir mánuðinn án afmarkaðrar hrinu. Stærsti skjálftinn mældist 1,9 að stærð.
Vatnajökull
Bárðarbunga
Hátt í 50 jarðskjálftar mældust í Bárðarbungu í ágúst, þar af 11 þann 30. ágúst. Stærsti skjálftinn mældist 3,0 að stærð, einnig þann 30. ágúst. Þetta er talsvert minna en í maí og júní þegar virkni í Bárðarbungu var óvenju mikil.
Grímsvötn
11 jarðskjálftar mældust í Grímsvötnum í mánuðinum, sem er hefðbundin virkni.
Öræfajökull
8 jarðskjálftar mældust við Öræfajökul í ágúst, sem er hefðbundin virkni.
Fyrir utan þessi þrjú svæði mældust um 60 jarðskjálftar annars staðar í og við Vatnajökul, sem er sambærilegt við undanfarna mánuði.
Hofsjökull
Fjórir jarðskjálftar mældust í Hofsjökli í ágúst, sem er í samræmi við dæmigerðan mánaðarlegan fjölda á svæðinu.
Norðurgosbeltið
Um 173 jarðskjálftar mældust á Norðurgosbeltinu í heild í ágúst, þar af um 60 á Kröflusvæðinu.
Askja
31 jarðskjálfti mældist í og við Öskju í ágúst, þar af 8 þann 30. ágúst í lítilli þyrpingu. Stærsti skjálftinn á svæðinu mældist 2,1 að stærð.
Tjörnesbrotabeltið
Hátt í 190 jarðskjálftar mældust á Tjörnesbrotabeltinu í ágúst, sem er svipað og undanfarna mánuði. Stærsti skjálftinn mældist 2,9 að stærð þann 2. Ágúst og var staðsettur um 30 km NV við Grímsey.
Önnur svæði
Þann 8. Ágúst mældist skjálfti af stærð 1,9 skammt norðan við Surstey. Síðast mældist skjálfti á því svæði í desember 2025 sem var 2,6 að stærð. Síðustu ár hafa nokkrir skjálftar mælst á þessu svæði á hverju ári.



