Jarðskjálftayfirlit - febrúar 2026
Ríflega 3600 jarðskjálftar voru mældir á landinu í febrúarmánuði, mun fleiri en í janúar þegar þeir voru rétt um 2000 talsins, þar ber helst að nefna jarðskjálftahrinu við Eldey á Reykjaneshrygg sem hófst að kvöldi 8. febrúar og stóð yfir í rúman sólahring, þar mældust um 600 jarðskjálftar og voru þeir stærstu rúmlega þrír að stærð og voru þeir jafnframt stærstu skjálftarnir sem mældust í mánuðinum. Ekki mældust aðrir skjálftar yfir þrír að stærð við eða á Íslandi en um 300 km norður á Kolbeinseyjarhrygg mældust nokkrir skjálftar og var sá stærsti 3,5 að stærð þann 15. febrúar.
Nokkrar tilkynningar bárust Veðurstofunni um að skjálftar höfðu fundist í byggð en eftir jarðskjálftayfirlit var ekki hægt að staðfesta að þessi áhrif sem fundust hafi verið vegna jarðskjálfta.
Þann 3. febrúar var SeisComp jarðskjálftavöktunarkerfið formlega tekið í notkun á Veðurstofu Íslands og hætt var að yfirfara jarðskjálfta í SIL vöktunarkerfinu. Þó er búið að yfirfara alla skjálfta í SeisComP frá og með 1. febrúar. Þessar breytingar geta haft áhrif í samanburði á fjölda og staðsetningar jarðskjálfta.
Sjá frekar: Skjálftalísu
Reykjanesskagi
Á Reykjanesskaga mældust um 570 jarðskjálftar í febrúar, færri en í janúar þegar þeir voru um 700 talsins og voru um helmingur þeirra í febrúar staðsettir vestan við Kleifarvatn. Á Sundhnúksgígaröðunnni mældust rúmlega 40 smáskjálftar og voru þeir flestir staðsettir milli Grindavíkur og Sýlingafells. Mælingar sýna að landris heldur áfram við Svartsengi. Við Víkur, suðvestur af Grindavík mældust um áttatíu smáskjálftar og eru þeir taldir verða vegna spennubreytinga útfrá landrisi í Svartsengi. Aðrir skjálftar á skaganum voru dreifðir á hefbundin jarðskjálftasvæði, við Reykjanestá, í Brennisteinsfjöllum og við Bláfjöll.
Reykjaneshryggur
Að kvöldi 6. febrúar hófst jarðskjálftahrina um 45km suðvestur af Reykjanestá á Reykjaneshrygg, þar mældust um 90 jarðskjálftar og voru þeir stærstu rétt undir þremur að stærð. Um einum og hálfum sólahring síðar hófst jarðskjálftahrina um 30 km nær landi við Eldey og stóð hún í um einn og hálfan sólahring, þar mældust um 600 jarðskjálftar og voru þeir stærstu rúmlega þrír að stærð. GPS-mælir sem er staðsettur á Eldey sýndi engar marktækar breytingar í kjölfar hrinunnar og benda mælingar til þess að landsig haldi áfram á eyjunni.
Grjótárvatn
Um 180 jarðskjálftar mældust við Grjótárvatn og voru þeir allir undir 1,7 að stærð en að meðaltali mældust um 240 skjálftar á mánuði á síðasta ári. Væg hviða mældist á svæðinu á miðnætti 26. febrúar.
Vesturgosbeltið
Hengill
Í Henglinum voru 85 jarðskjálftar staðsettir í febrúar. Sextán jarðskjálftar mældust í Hveradölum þann 6. febrúar og voru aðrir klasar staðsettir við Húsmúla, Ytri-Hóla, Selfjall og Nesjavelli. Þann 18. febrúar barst tilkynning frá Hveragerði um að jarðskjálfti hafði fundist í byggð kl. 15:44. Kl. 15:47 varð skjálfti austur af Henglinum sem var 1,8 að stærð.
Langjökull
Um 25 jarðskjálftar voru staðsettir í og við Langjökli í mánuðinum, flestir voru á vestur helmingi jökulsins og voru þeir allir undir 2 að stærð.
Hofsjökull
12 skjálftar mældust suðaustur af Blöndulóni, allir undir tveimur. Ekki algengt að fá skjálfta á þessum stað. Við sjáum stundum virkni við Blöndulón, en það er aðeins norðar en þessi virkni.
Austurgosbeltið
Katla
Tæplega 160 jarðskjálftar mældust við Kötlu í síðasta mánuði, stærsti skjálftinn mældist 2,7 að stærð þann 12. febrúar.
Torfajökull
Um 50 skjálftar á Torfajökulssvæðinu. Eins og áður eru flestir í vestanverðri öskjunni. SeisComP staðsetur nokkra skjálfta á svæðinu milli Mýrdalsjökuls og Torfajökuls en það er mjög lítið af skjálftum þar í SIL kerfinu. Kanna þarf frekar hvort þetta séu raunverulegir skjálftar eða hvort SeisComP sé í vandræðum með staðsetningarnar.
Veiðivatnasvæði
Smáhrina við Vesturbjalla við Tungnaá 24. febrúar. 14 skjálftar alls, allir litlir. Óvenjuleg staðsetning en fáum þó af og til litlar þyrpingar í þessum sprungusveimi sem nær upp í Heljargjá.
Hekla
Áfram er rólegt við Heklu, þar mældust þrír smáskjálftar í febrúar.
Vatnajökull
Bárðarbunga
Rúmlega þrjátíu jarðskjálftar voru staðsettir í Bárðarbungu í mánuðinum, sá stærsti mældist 2,2 að stærð en aðrir voru undir 1,5 að stærð. Til samanburðar voru 130 jarðskjálftar mældir í Bárðarbungu í janúarmánuði. Undanfarin misseri hefur skjálftavirkni minnkað í kjölfar skjálfta >5, sem er tilfellið hér en skjálfti af stærð 5,4 varð 31. janúar. Tíu smáskjálftar mældust á djúpa svæðinu austan Bárðarbungu og þann 20. febrúar um kl. 9 mældist nokkuð sterk óróahviða á svæðinu. Einnig mældist minni hviða aðfaranótt 27. febrúar.
Önnur svæði
Um 35 skjálftar mældust í og við Hamarinn og um 25 við Grímsfjall.
Norðurgosbeltið
Mest virkni á norðurgosbeltinu við Öskju, Herðubreið, Kröflu og Þeistareyki. Alls um 200 skjálftar.
Askja
40 skjálftar alls, aðallega í þyrpingu við austurbarm öskjunnar. Lítil hrina með um 20 skjálftum varð við Kollóttudyngju 6. - 9. febrúar. Þar hafa komið skjálftar af og til í gegnum tíðina.
Suðurlandsbrotabeltið
Um þrjátíu smáskjálftar mældust í Þrengslunum, þar af 16 skjálftar þann 19. febrúar. Að öðru leyti dreifð virkni.
Tjörnesbrotabeltið
Um 200 skjálftar á Tjörnesbrotabeltinu, langflestir á Grímseyjarbrotabeltinu. Einn skjálfti úti fyrir Skagafirði 12. febrúar, 2,6 að stærð. Það koma skjálftar við og við á þessu svæði, þó venjulega heldur austur.




