Jarðskjálftayfirlit

Jarðskjálftavirkni á öllu landinu er lýst í yfirliti sem birt er mánaðarlega á vefnum (frá september 2024). Náttúruvársérfræðingur skrifar yfirlitið sem birt er í annari viku hvers mánaðar. Þar er farið yfir virkni vikunnar á öllum jarðskjálftasvæðum og í eldstöðvarkerfum á landinu. Ef jarðskjálftahrinur eru í gangi, stærri skjálftar eða aðrir markverðir atburðir hafa orðið í vikunni er fjallað sérstaklega um það.

Mánaðaryfirlit

Jarðskjálftayfirlit - Maí 2025

Sjálfvirka jarðskjálftamælakerfi VÍ mældi um 6000 jarðskjálfta í maí 2025 og þar af hafa rúmlega 3800 jarðskjálftar verið yfirfarnir. Kröftug jarðskjálftahrina hófst rúma 10 km austan við Grímsey þann 13. maí og mældust tæplega 2000 jarðskjálftar þar á einni viku og þar af voru 14 skjálftar yfir M3,0 að stærð. Á fyrsta degi hrinunnar mældust tveir skjálftar af stærð M4,7 en á öðrum degi mældist stærsti skjálftinn M5,0 sem var næststærsti skjálfti sem mældist í maí 2025. Stærsti jarðskjálfti mánaðarins var M5,1 að stærð og varð þann 24. maí um 26 km SV af Reykjanestá. Skjálftinn var hluti af nokkuð öflugri jarðskjálftahrinu þar sem hátt í 600 jarðskjálftar, þar af 40 skjálftar um eða yfir M3 að stærð, urðu á tæplega þremur sólarhringum.

Nánar má skoða skjálftavirkni hér: Skjálfta Lísa

Reykjanesskagi

Um 500 smáskjálftar mældust á svæðinu frá Grindavík norður fyrir Keili þar sem kvikugangur myndaðist þann 1. apríl 2025 (Landris heldur áfram í Svartsengi | Fréttir | Veðurstofa Íslands). Jarðskjálftavirkni þar fór minnkandi eftir því sem leið á mánuðinn og mældist um eða undir tuttugu skjálftar á dag þar undir lok mánaðarins. Þann 20. maí varð skammvinn smáskjálftahrina á milli Stóra-Skógfells og Sundhnúks, sama stað og kvikuhlaup í aðdraganda eldgosa á Sundhnúksgígaröðinni. Ekki sáust breytingar í öðrum mælingum sem bentu til þess að þarna væri kvikuhlaup að hefjast.

Einnig var nokkur smáskjálftavirkni í vestanverðu Fagradalsfjalli þar sem um 150 skjálftar mældust í mánuðinum. Sama þróun var í virkninni þar eins og við kvikuganginn þar sem virknin var mest í byrjun mánaðarins en dró síðan jafnt og þétt úr.

Tvær smærri hrinur urðu austarlega á skaganum í mánuðinum, annars vegar þann 3. maí þegar hátt í 100 smáskjálftar mældust við Vífilsfell og hinsvegar dagana 25. - 27. maí þegar um 25 skjálftar mældust í Bláfjöllum þar sem tveir stærstu skjálftarnir voru 2,9 að stærð. Annars var nokkuð hefðbundin virkni við Kleifarvatn, Trölladyngju og Reykjanestá.

Reykjaneshryggur

Dagana 24. til 26. maí varð nokkuð öflug jarðskjálftahrina suðvestan við Eldey á Reykjaneshrygg. Stærsti jarðskjálftinn í hrinunni mældist M5,1 að stærð og varð á fyrsta degi hrinunnar. Alls mældust um 600 skjálftar í hrinunni, þar af 40 skjálftar um eða yfir M3 að stærð. Jarðskjálftahrinur með skjálftum um eða yfir M4.0 að stærð eru nokkuð algengar nærri Eldey, en síðast mældist skjálfti yfir M5.0 að stærð í október 2013. Veðurstofunni bárust tilkynningar um að stærsti skjálftinn hafi fundist víða á Reykjanesskaga og SV-landi.

Bárðarbunga

Rúmlega 100 jarðskjálftar mældust í Bárðarbungu í maí 2025, þar af var stærsti jarðskjálftinn M3,5 að stærð þann 5. maí. Jarðskjálftavirkni í Bárðarbungu hefur verið þó nokkur undanfarin misseri og reglulega mælst skjálftar um og rétt yfir M5.0 að stærð. Skjálftavirknin er talin vera afleiðing áframhaldandi kvikusöfnunar undir Bárðarbungu.

Grjótárvatn

Rúmlega 300 jarðskjálftar mældust nærri Grjótárvatni í mánuðinum sem er mesti fjöldi skjálfta sem mælst hefur á svæðinu í einum mánuði frá því að virkni þar jókst töluvert í ágúst 2024. Í byrjun maí setti Veðurstofan upp nýjan jarðskjálftamæli um 10 km sunnan við miðju jarðskjálftavirkninnar. Með fjölgun jarðskjálftamæla á svæðinu eykst fjöldi smáskjálfta sem mælist en endurspeglar ekki endilega breytingu í virkni á svæðinu. Sé einungis horft á jarðskjálfta yfir M1.0 að stærð sést að virkni á milli mánaða helst stöðug og um 100 jarðskjálftar mælast í mánuði undanfarið. Einnig var bætt við GPS mæli við bæinn Hraunholt NV við miðju virkninnar til að vakta aflögun á svæðinu en hingað til hafa þó ekki mælst markverðar breytingar í aflögun. Líklegasta skýringin á þessarri langvarandi jarðskjálftavirkni er talin vera kvikusöfnun á miklu dýpi, ca 16-18 km, og er fjölgun mælitækja liður í aukinni vöktun og rannsóknum á svæðinu.

Hengill

Um 180 jarðskjálftar mældust á Hengilssvæðinu í mánuðinum. Þar mældist stærsti skjálftinn M3,3 að stærð skammt vestan við Ölkelduháls þann 26. maí. Veðurstofunni bárust tilkynningar að sá skjálfti hafi fundist í Hveragerði. Skjálftavirknin dreifði sér aðallega í þrjár þyrpingar, ein um 5 km NV við Nesjavelli, önnur nærri Nesjavallavirkjun og sú þriðja skammt austan við Ölkelduháls.

Austurgosbeltið

Hefðbundin virkni var við allar eldstöðvar í austurgosbeltinu m.a. Kötlu, Heklu og Torfajökul.

Norðurgosbeltið

Um 100 jarðskjálftar mældust við Herðbreið þar sem stærsti skjálftinn var M3,1. Jarðskjálftahrinur við Herðubreið og Herðubreiðartögl hafa verið nokkuð algengar undanfarin ár og stafa líklegast af flekahreyfingum.

Hefðbundin virkni var á öðrum stöðum í Norðurgosbeltinu.

Suðurlandsbrotabeltið

Rúmlega 300 jarðskjálftar mældust á Suðurlandsbrotabeltinu, flestir í tveimur jarðskjálftahrinum annars vegar skammt austan við Þrengslin og hinsvegar tæpa 5 km sunnan við Hveragerði. Hrinan austan við Þrengslin stóð yfir dagana 6. - 8. maí og mældust nærri 80 skjálftar þeir stærstu um M2,5. Í hrinunni sunnan við Hveragerði mældust um 140 smáskjálftar, allir undir M2,0 að stærð, á tveimur sólarhringum frá 28. - 29. maí.

Tjörnesbrotabeltið

Kröftug jarðskjálftahrina hófst rúma 10 km austan við Grímsey þann 13. maí og mældust tæplega 2000 jarðskjálftar þar á einni viku og þar af voru 14 skjálftar yfir M3,0 að stærð. Á fyrsta degi hrinunnar mældust tveir skjálftar af stærð M4,7 en á öðrum degi mældist stærsti skjálftinn M5,0 sem var næststærsti skjálfti sem mældist í maí 2025. Mestur kraftur var í hrinunni á öðrum degi, þann 14. maí þegar um 600 jarðskjálftar mældust en síðan dró jafnt og þétt úr hrinunni sem stóð yfir í um viku. Stærstu skjálftarnir í hrinunni fundust víða á Norðurlandi. Virkni á öðrum svæðum á Tjörnesbrotabeltinu var hefðbundin.

Önnur svæði

Fimmtán smáskjálftar mældust við Kleppjárnsreyki í uppsveitum Borgarfjarðar í lok mánaðarins. Af og til hafa komið smærri hrinur í uppsveitum Borgarfjarðar en síðast varð nokkuð löng hrina í upphafi árs 2022 rúma 10 km austan við Ok.






Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica